fasteignasölur.is
Sunnusmári 7
1 af 18

Um eignina

LIND fasteignasala og Herdís Sölvína Jónsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu Sunnusmára 7, 201 Kópavogur, eign merkt 07-03.
Um er að ræða afar bjarta og vandaða 4ra herbergja íbúð á 7. hæð, efstu hæð, með aukinni lofthæð og stæði í bílakjallara. 
Svalir snúa til suðurs og eru rúmgóðar með svalalokun og nýtast því sem notalegt aukarými allt árið um kring.
Skipulag eignarinnar er einstaklega gott með rúmgóðu alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda fallega heild.


Eigninni fylgir hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu ásamt sér geymslu í kjallara. 
Stærð eignar er 111,2 fm. skv. FMR. en þar af er geymsla 12,6 fm.

Allar nánari upplýsingar veitir Herdís Sölvína Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 862 0880 eða herdis@fastlind.is
Smelltu hér og fáðu söluyfirlit strax.


Nánari lýsing:
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, alrými með eyju stofu/borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi.
Anddyri: Rúmgott anddyri með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Þvottahúsið: Er inn af forstofunni og er með góðri innréttingu, góðri vinnuaðstöðu, búið að bæta við rúmgóðum efri skápum.
Baðherbergi: Ljósar flísar á gólfi og hluta veggja. walk-in sturta með hertu gleri, hanklæðaofn og vegghengdu salerni.
Innrétting, granít á borði, speglaskápur. Útloftun. 
Eldhúsið:  Er einstaklega glæsilegt og vandað, þar sem hugað hefur verið að bæði útliti og notagildi.
Rúmgóð eldhúseyja hefur verið stækkuð og bætt við skúffum sem skapa gott geymslupláss.
Eyjan er klædd glæsilegu graníti sem nær niður í gólf á hliðum hennar og gefur rýminu fágað og heilsteypt yfirbragð. Sama granít prýðir vegginn fyrir ofan vaskinn og tengir þannig efnisvalið fallega saman.Tæki í eldhúsi eru m.a. ofn í vinnuhæð, uppþvottavél, spanhelluborð í eyju, eyjuháfur yfir helluborði.  
Vandað og tímalaust eldhús sem myndar glæsilega umgjörð um hjarta heimilisins.og gefur
skemmtilega tengingu við stofu og borðstofu.
Stofa/borðstofa: 
Í björtu og rúmgóðu alrými, stórir  gluggar gefa rýminu einstaka birtu og fallegt útsýni yfir hluta Kópavogs, útgengi á rúmgóðar svalir  með svalalokun og nýtast því sem notalegt aukarými stóran hluta ársins.
Hjónaherbergið er rúmgott með parketi á gólfi, rúmgóðum innbyggðum skápum og glugga til suðurs.
Herbergi ll:  Gott herbergi  með parketi á gólfi og innbyggðum fataskápum.
Herbergi lll  Rúmgott með parket á gólfi og innfelldum fataskápum. nýtist í dag sem sjónvarpsherbergi.
Björt og falleg eign á góðum stað þar sem örstutt er í alla þjónustu.

Sérgeymsla í sameign 12,6 fm að stærð merkt 0116  auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu.
Bílageymsla: Íbúðinni fylgir stæði í lokaðri bílageymsl merkt 04C06.
Sameign er flísalögð, ytri forstofa og myndavéladyrasími. Teppalagður stigagangur og lyfta í sameign. Rafmagnsopnun á útidyrahurðum í sameign.

Nánari upplýsingar veitir Herdís Sölvína Jónsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 862 0880 eða herdis@fastlind.is
Ef þú ert í söluhugleiðingum.  Endilega heyrðu í mér, það eru alltaf að seljast eignir, og afhverju ekki þín eign.


Allir Kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar, með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 8 samstarfsaðilum, m.a.: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Ísleifur Jónsson, Parki, Betra bak og Dorma. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Sunnusmári 7

201 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð111,2 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
110.800.000 kr.996 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2519958Fasteignamat91.550.000 kr.Brunabótamat77.300.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 18 myndir

Upp ↑