Um eignina
Hiti er í gólfum ásamt hitastýringum og innfelldum ljósum með dimmerum. Vinsæl staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu s.s. skóla leikskóla, verslun, íþróttamannvirki og útisvæði.
Boðavík 18, 800 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-02, fastanúmer 252-5374 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Birt stærð 99.3 fm.
BÓKAÐU EINKASÝNINGU:
Böðvar Reynisson Lögg.fasteignasali. í síma 7668484, tölvupóstur bodvar@eignaland.is.
Jens Magnús Jakobsson Lögg.fasteignasali, í síma 893-1984, tölvupóstur magnus@eignaland.is
**** EIGNIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMING ****
NÁNARI LÝSING:
Forstofan er með flísum á gólfi og forstofuskáp.
Samliggjandi stofa/borðstofa/eldhús
Eldhúsið er parketlögð með fallegri IKEA innréttingu með lýsingu undir efri skápum og dökkri borðplötu. Innbyggður bakaraofn í vinnuhæð. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti. Borðplata stendur út af innréttingu stofu megin svo hægt sé að sitja við eyjuna.
Stofan/borðstofan er parketlögð, rúmgóð og björt og gengið er frá stofunni út í suðvestur garð.
Svefnherbergi I er rúmgott með góðum fataskápum.
Svefnherbergi II með góðum fataskáp.
Svefnherbergi III með góðum fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi og hluta veggja, falleg innrétting með handlaug og spegli fyrir ofan innréttingu. Upphengt salerni, handklæðaofn og sturta með glerhlið.
Þvottahúsið er með fallegri innréttingu og rúmgóðu skápaplássi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Frábær staðsetning í nýju og fjölskylduvænu hverfi
Boðavík 18 er í Jórvíkurhverfi á Selfossi, nýju og ört vaxandi hverfi þar sem áhersla er lögð á gott og fjölskylduvænt umhverfi. Í næsta nágrenni eru bæði grunnskóli og leikskóli, sem gerir staðsetninguna sérstaklega hentuga fyrir fjölskyldur með börn.
Í hverfinu og næsta nágrenni er einnig góð tenging við fjölbreytta þjónustu Selfoss, þar á meðal matvöruverslanir, íþrótta- og frístundastarf, sundlaug, heilbrigðisþjónustu og framhaldsskóla.
Nálægð við skóla, leiksvæði og útivistarsvæði, ásamt þeirri uppbyggingu sem á sér stað í Jórvíkurhverfi, skapar góð skilyrði fyrir fjölskyldufólk sem vill búa í nýlegu og vaxandi hverfi á Selfossi.
Einstaklega fallegt og vel skipulagt hús sem vert er að skoða
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
Boðavík 18
Staðsetning
Allar 35 myndir
Upp ↑

































