fasteignasölur.is
Engjavík 12
1 af 35

Um eignina

Engjavík 12 er einstaklega stílhreint og fallegt 99,3m², 4ra herbergja miðjuraðhús í nýju og ört vaxandi fjölskylduvænu hverfi á Selfossi. Byggingarefni hússins er timbur og húsalengjan er klædd með bárujárns og Stacbond klæðningu á víxl. 
Hiti er í gólfum ásamt hitastýringum og innfelldum ljósum með dimmerum. Hellulagt bílaplan, steyupt sorptunnuskýli og þökulögð lóð. Vinsæl staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu s.s. skóla leikskóla, verslun, íþróttamannvirki og útisvæði.  


**** EIGNIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMING **** 

BÓKAÐU EINKASÝNINGU:
Böðvar Reynisson Lögg.fasteignasali. í síma 7668484, tölvupóstur bodvar@eignaland.is.
Jens Magnús Jakobsson Lögg.fasteignasali, í síma 893-1984, tölvupóstur magnus@eignaland.is


Engjavík 12, 800 Selfoss skv. FMR - eign merkt 01-02, fastanúmer 252-5343 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Birt stærð 99,3m²

NÁNARI LÝSING:
Forstofan er með flísum á gólfi og forstofuskáp.
Samliggjandi stofa/borðstofa/eldhús 
Eldhúsið er parketlagt með fallegri L-laga IKEA innréttingu með lýsingu undir efri skápum og ljósri borðplötu. Innbyggður bakaraofn í vinnuhæð. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti. 
Stofan/borðstofan er parketlögð, rúmgóð og björt og gengið er frá stofunni út í norðaustur garð.
Svefnherbergi I er rúmgott með góðum fataskápum.
Svefnherbergi II með góðum fataskáp.
Svefnherbergi III með góðum fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi og hluta veggja, falleg innrétting með handlaug og spegli fyrir ofan innréttingu. Upphengt salerni, handklæðaofn og sturta með glerhlið.
Þvottahúsið er með fallegri innréttingu og rúmgóðu skápaplássi með led lýsingu undir efri skápum. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.

Frábær staðsetning í nýju og fjölskylduvænu hverfi
Engjavík 12 er í Jórvíkurhverfi á Selfossi, nýju og ört vaxandi hverfi þar sem áhersla er lögð á gott og fjölskylduvænt umhverfi. Í næsta nágrenni eru bæði grunnskóli og leikskóli, sem gerir staðsetninguna sérstaklega hentuga fyrir fjölskyldur með börn.
Í hverfinu og næsta nágrenni er einnig góð tenging við fjölbreytta þjónustu Selfoss, þar á meðal matvöruverslanir, íþrótta- og frístundastarf, sundlaug, heilbrigðisþjónustu og framhaldsskóla.
Nálægð við skóla, leiksvæði og útivistarsvæði, ásamt þeirri uppbyggingu sem á sér stað í Jórvíkurhverfi, skapar góð skilyrði fyrir fjölskyldufólk sem vill búa í nýlegu og vaxandi hverfi á Selfossi.

Einstaklega fallegt og vel skipulagt hús sem vert er að skoða


 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

Engjavík 12

800 Selfoss
TegundRað-/parhúsStærð99,3 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
69.900.000 kr.704 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2525343Fasteignamat71.750.000 kr.Brunabótamat57.650.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðarsmára 5, 2. hæð, 200 KópavogurSími547-3900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 35 myndir

Upp ↑