Um eignina
Hæðarland 14, 800 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-02, fastanúmer 252-9390 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Birt stærð 96.1 fm.
**** EIGNIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMING ****
BÓKAÐU EINKASÝNINGU:
Böðvar Reynisson Lögg.fasteignasali. í síma 7668484, tölvupóstur bodvar@eignaland.is.
Jens Magnús Jakobsson Lögg.fasteignasali, í síma 893-1984, tölvupóstur magnus@eignaland.is
Nánari lýsing eignar:
Forstofa með 60x60cm flísum á gólfi og góðu forstofuskáp.
Samliggjandi stofa/borðstofa/eldhús
Eldhúsið er parketlagt með hvítri L-laga IKEA innréttingu með lýsingu undir efri skápum, svörtum vaski, blöndunartækjum og borðplötu. Innbyggður bakaraofn í vinnuhæð. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti.
Stofan/borðstofan er parketlögð, rúmgóð og björt og gengið er frá stofunni út í garð.
Svefnherbergi I er rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi II með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergi III með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Baðherbergi með ljósum 60x60cm flísum á gólfi og hluta veggja, falleg hvít innrétting með handlaug og speglaskáp fyrir ofan innréttingu. Upphengt salerni, handklæðaofn og flísalögð sturta með glerþili.
Þvottahúsið er með hvítri innréttingu með vaski og góðu skápaplássi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Útisvæði og staðsetning
Húsið stendur á góðri lóð í rólegu og fjölskylduvænu hverfi. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á svæðinu á síðustu árum og hverfið hefur yfirbragð nýs og vel skipulagðs íbúðahverfis.
Staðsetningin er sérstaklega góð fyrir fjölskyldufólk. Leikskóli er í göngufæri, auk þess sem stutt er í matvöruverslun, útivistarsvæði og hesthús. Þá er stutt í aðra þjónustu Selfoss, þar á meðal skóla, íþrótta- og frístundastarf, sundlaug og fjölbreytta verslun og þjónustu.
Einstaklega fallegt og vel skipulagt hús sem vert er að skoða
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
Hæðarland 14
Staðsetning
Allar 36 myndir
Upp ↑


































