Um eignina
BÓKAÐU EINKASÝNINGU:
Böðvar Reynisson Lögg.fasteignasali., í síma 7668484, tölvupóstur bodvar@eignaland.is.
Jens Magnús Jakobsson Lögg.fasteignasali., í síma 893-1984, tölvupóstur magnus@eignaland.is.
Núpahraun 31, 815 Þorlákshöfn, nánar tiltekið skv. FMR, eign merkt 01-03, fastanúmer 251-5366 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Birt stærð 104,3
Skipulag eignarinnar:
Forstofa: Gengið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Þvottahús: Úr forstofu er gengið inn í þvottahús, sem er með flísalögðu gólfi, innréttingu og vaski. Þvottahúsið er vel staðsett og nýtist jafnframt sem góð geymsluaðstaða.
Eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu og björtu alrými.
Eldhúsið er með ljósri L-laga innréttingu og dökkri borðplötu. Þar eru m.a. innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð. Stofan er rúmgóð og býður upp á góðan borðstofu- og stofukrók. Úr stofunni er gengið út um stóra rennihurð á steypta verönd og útisvæði.
3x svefnherbergi: Í húsinu eru þrjú svefnherbergi, þar af rúmgott hjónaherbergi ásamt tveimur minni herbergjum. Fataskápar eru í öllum herbergjum.
Baðherbergið er snyrtilegt og vel frágengið, með flísum á gólfi og á sturtusvæði. Falleg innrétting með góðu skápaplássi, upphengdu salerni, handklæðaofni og rúmgóðri flísalagðri sturtu með glerþili.
Útisvæði og geymsla
Lóðin er frágengin með steyptu bílaplani, steyptri verönd og þökulagðri baklóð. Einnig fylgir eigninni 4,6 m² útigeymsla, staðsett undir þakskyggni við húsið. Húsið og nágrannaeignin eru tengd saman með skyggni sem skapar skjól við inngang og aðkomu.
Staðsetning
Núpahraun 31 er í nýlegu íbúðahverfi í Þorlákshöfn. Þorlákshöfn er ört vaxandi bæjarfélag við sjávarsíðuna þar sem góð grunnþjónusta er til staðar og stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamannvirki, sundlaug og aðra þjónustu.
Einnig er stutt í golfvöll og fjölbreytta útivist og náttúru, auk þess sem staðsetningin gefur gott aðgengi að höfuðborgarsvæðinu og öðrum byggðakjörnum á Suðurlandi.
Helstu kostir eignarinnar:
• Nýlegt hús, byggt 2024
• 104,3 m² á einni hæð
• Þrjú svefnherbergi
• Bjart og rúmgott opið alrými
• Vel búið eldhús með innbyggðum tækjum
• Gólfhiti
• Walk-in sturta
• Gott þvottahús með innréttingu og vaski
• 4,6 m² útigeymsla
• Steypt bílaplan
• Steypt verönd og frágengin baklóð
• Sérinngangur
• Nýlegt og fjölskylduvænt hverfi
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
Núpahraun 31
Staðsetning
Allar 40 myndir
Upp ↑






































