Um eignina
***** EIGNIN ER LAUS STRAX ****
Allar upplýsingar veitir Böðvar Reynisson, lögg. fasteignasali, í síma 7668484, tölvupóstur bodvar@eignaland.is.
Eignin Markarflöt 31 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 207-1773, birt stærð 183,4 m².
Íbúðarhúsnæði 136,2 m²
Bílskúr 47,2 m²
Óskráður garðskúr fylgir einnig.
Skipting eignar:
3x svefnherbergi, 2x baðherbergi, eldhús, þvottahús, forstofa, gangur, bílskúr og óskráður garðskúr.
ATH! Eitt svefnherbergið er upprunalega tvö minni svefnherbergi sameinuð í eitt stærra.
Forstofa með flísum á gólfi og rúmgóðu skápaplássi.
Gestasalerni/Baðherbergi I við forstofu, flísalagt á gólfi og veggjum, innrétting með handlaug og spegli yfir innréttingu, vegghengt salerni, handklæðaofn og sturtuklefi.
Stofa/borðstofa með parketdúk á gólfi. Rýmið er mjög rúmgott og bjart, með stórum og góðum gluggum með útgengi út á hellulagða verönd. Þaðan er svo gengið áfram út í garð.
Eldhús er flísalagt með eldri innréttingu með góðu skápa- og borðplássi og borðkróki. Helluborð, innfelldur ofn og örbylgjuofn eru í innréttingu. Tengi er fyrir uppþvottavél.
Þvottahús er inn af eldhúsi þar sem er gengið út á lóð. Rými fyrir þvottavél og þurrkara og gott skápapláss. Ruslalúga er við hlið dyranna og vatnstengi fyrir garðslöngur. Flísar eru á gólfum og veggjum að hluta.
Búr/geymsla er inn af þvottahúsi með upphengdum hillum á veggjum og flísum á gólfi.
Svefnherbergja álman er á hægri hönd þegar gengið er inn í húsið frá forstofu. Þar er gangur sem liggur að herbergjunum og baðherbergi. Parketdúkur á gólfi.
Hjónaherbergið er innst við ganginn. Herbergið er rúmgott með góðu skápaplássi. Parketdúkur á gólfi.
2x svefnherbergi liggja að auki frá ganginum, parketdúkur á gólfi.
Baðherbergi II er flísalagt í hólf og gólf, með baðkari, upphengdu salerni, innréttingu með handlaug og speglaskáp yfir handlaug.
Bílskúrinn er rúmgóður, með steingólfi, vatni, hita og niðurfalli. Vatns- og hitainntak er innst í skúrnum. Manngengar dyr eru við hlið innkeyrsluhurðar og einnig er gengið út í garð frá hlið skúrsins. Rafmagnshurðar opnari er á innkeyrsludyrum.
Garðskúr - timburskúr er aftan við bílskúrinn, tilvalinn fyrir garðverkfæri, sláttuvélar o.fl. Skúrinn er óskráður og ekki inn í fermetratölu, en hann fylgir kaupunum.
Um er að ræða einstaklega reisulegt og vel skipulagt hús sem þó þarfnast talsverðra lagfæringa, en býður upp á mikla möguleika.
Skipt hefur verið um nokkra glugga í húsinu, eða a.m.k. ytra byrði og gler að sögn seljenda.
Búið er að bæta við ofnum víða í húsinu, en á eftir að klára frágang á hinu og þessu sem byrjað hefur verið á.
ATH! Seljendur hafa ekki búið í húsinu um margra ára skeið og er ekki kunnugt um ástand þess að öðru leyti en því sem kemur fram í söluyfirliti eða sést með berum augum. Seljendur og fasteignasali hvetja áhugasama kaupendur til að skoða og kynna sér ástand hússins vel og fá fagaðila til þess að aðstoða við að meta ástand þess, hafi þeir ekki sjálfir þá fagþekkingu sem til þarf.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
Markarflöt 31
Staðsetning
Allar 34 myndir
Upp ↑
































