fasteignasölur.is
Fannborg 7
1 af 19

Um eignina

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR
FANNBORG 7


46,4 m² vinnustofa með sérinngangi

Huggulegt rými með sérinngangi, opnu alrými og geymslu í sameign. Stutt er í verslanir, kaffihús, menningu og almenningssamgöngur við Hamraborg.

Eignin er skráð sem vinnustofa og er ekki samþykkt sem íbúð.

SKIPULAG OG INNRÉTTINGAR
Forstofa: Flísar á gólfi og skápur.
Alrými og eldhús: Parket á gólfi og snyrtileg eldhúsinnrétting með viðarlituðum neðri skápum og hvítum efri skápum.
Opið rými inn af alrými: Parket á gólfi og skápur. Rýmið er gluggalaust.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með opinni sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni. Skúffur undir vaski og speglaskápur fyrir ofan. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: 4,1 m² geymsla í sameign.

Gluggar eignarinnar eru á einni hlið og snúa að bílaplani.

STÆRÐ OG SKRÁNING
Heildarstærð er 46,4 m² samkvæmt uppgefnum skráningarupplýsingum:
• Vinnustofa: 42,3 m² — merkt 02-0003.
• Geymsla: 4,1 m² — merkt 02-0011.

STAÐSETNING
Fannborg er miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Í nágrenninu eru leik-, grunn- og framhaldsskólar, verslanir, bókasafn, listasafn, kirkja, veitingastaðir og kaffihús. Tíðar strætóferðir eru við Hamraborg og stutt á stofnbrautir.

BÓKAÐU SKOÐUN
Eggert Maríuson
Löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala
Sími 690 1472 · eggert@stofnfasteignasala.is

STOFN — Setjum þig í fyrsta sætið

 

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Fannborg 7

200 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð46,4 m²Herbergi1Baðherb.1
29.800.000 kr.642 þ./m²
Byggingarár1978InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2355868Fasteignamat14.625.000 kr.Brunabótamat26.200.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangLyngás 11, 210 GarðabærSími511-0900 / 661-7788

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 19 myndir

Upp ↑