fasteignasölur.is
Vesturgata 26
1 af 30

Um eignina

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Sjarmerandi og björt eign á tveimur hæðum í hjarta Reykjavíkur þar sem fallegur eldri stíll fær að njóta sín.
  • Björt og sjarmerandi eign þar sem eldri stíll fær að njóta sín og skapar hlýlegan og einstakan karakter
  • Frábær staðsetning í hjarta Reykjavíkur – tilvalin fyrir þá sem vilja njóta miðbæjarlífsins
  • Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni og húsinu undanfarin ár

Nánari upplýsingar veita:
Andrea Ósk Harradóttir Lgf. í S: 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur


Birt stærð eignar er 92,9 m² samkv. HMS.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu, stofu, tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi og sérgeymslu. Sameiginlegt þvottahús er í kjallara.

Nánari lýsing eignar
Íbúðin er á tveimur hæðum og er aðgengi að henni bæði um sameiginlegan inngang framan við húsið og um sérinngang að aftanverðu.
Forstofa: Gengið er inn um sérinngang að aftanverðu í hlýlega forstofu með flísum á gólfi og fatahengi. Forstofan var endurnýjuð og flísalögð árið 2024.
Gestasnyrting: Við forstofu er gestasnyrting sem var endurnýjuð árið 2024.
Eldhús / borðstofa: Bjart og rúmgott rými með fallegu timburgólfi. Eldhúsið er með hvítri L-laga innréttingu, góðu skápaplássi og flísum á milli skápa. Við eldhúsið er rúmgóð borðstofa með stórum gluggum sem hleypa góðri birtu inn í rýmið.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með fallegu timburgólfi og stórum gluggum. Sýnilegur múrsteinn gefur rýminu hlýlegt yfirbragð og fellur vel að eldri stíl eignarinnar. Úr stofu liggur teppalagður stigi niður á neðri hæð.
Svefnherbergi: Bjart og rúmgott svefnherbergi með fataskáp og parketi á gólfi.
Hjónaherbergi: Gengið er niður teppalagðan stiga í stórt svefnherbergi með parketi á gólfi og góðri walk-in fataaðstöðu. Falleg smáatriði og eldri stíll eignarinnar njóta sín vel í rýminu. 
Baðherbergi: Fallegt baðherbergi sem var endurnýjað árið 2025. Baðherbergið er flísalagt með upphengdu salerni, opnum sturtuklefa og handklæðaofni. Samhliða endurbótunum voru rafmagns-, skolp- og neysluvatnslagnir endurnýjaðar.
Þvottahús / geymsla: Innangengt er af neðri hæð í sameiginlegt þvottahús í kjallara. Þaðan er aðgengi að sérgeymslu sem fylgir eigninni.
Lóð og sameign
Húsið stendur á eignarlóð. Að aftanverðu eru þrjú bílastæði, sameiginlegur sólpallur, grasflöt og gróðurbeð. Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu fylgir eigninni eitt sérmerkt  bílastæði.
Endurbætur samkvæmt upplýsingum seljanda
2013:
 Húsið drenað.
2022: Nýr tengill settur í geymslu fyrir frystiskáp.
2023: Parket á efri hæð slípað og lagfært.
2024: Nýir gluggar og tréverk við glugga að utan endurnýjað. Nýtt teppi sett á stiga, ný útidyrahurð sett upp, gestasnyrting endurnýjuð og forstofa endurnýjuð og flísalögð.
2025: Aðalbaðherbergi endurnýjað og rafmagns-, skolp- og neysluvatnslagnir endurnýjaðar. Nýjar hurðir settar á neðri hæð. Skolplögn frá húsi að götu endurnýjuð og brunnur settur. Stigi að framan endurgerður og nýjar rennur settar að framan.
2026: Skipt um fúnar spýtur í palli að aftan. Sprungur í grunni hússins fylltar og grunnur málaður. Gólf í sameign málað með skipalakki og nýtt ruslaskýli sett upp.
Annar gafl hússins er með nýrri báru en ekki liggja fyrir upplýsingar um hvenær hún var sett upp.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Vesturgata 26

101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundFjölbýlishúsStærð92,9 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.2
79.900.000 kr.860 þ./m²
Byggingarár1915FasteignanúmerF2000464Fasteignamat76.050.000 kr.Brunabótamat46.000.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangEngjateigur 3, 105 RekjavíkSímiPálsson

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑