Opið hús 7. okt. kl. 18:30–19:00
1 af 13Um eignina
Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (s:662-6163/bjarni@remax.is) kynnir vel skipulagt einbýlishús á einni hæð auk bílskúrs í Reykjahverfi í Mosfellsbæ. Húsið er skráð 127,6m og bílskúrinn 47,7fm, samtals 175,3fm. Til viðbótar við uppgefna fermetra er 12 fm áhaldahús. Búið er að breyta bílskúr í aukaíbúð. 1.330fm eignarlóð. Sér innkeyrslu með nægum bílastæðum. Klæðning hússins og þakkantur hefur verið endurnýjað að stórum hluta, skipt hefur verið um glugga að sunnanverðu, nýjar hurðir, nýtt parket á gangi og stofu, nýjar teppaflísar á herbergjum, rafmagn endurnýjað að hluta sem og frárennsli og pípulagnir, baðherbergi og gesta wc endurnýjuð að hluta.
Í húsinu er forstofa, gesta wc, stofa, eldhús, fjögur svefnherberg, baðherbergi, þvottahús og geymsla. Í bílskúr er alrými (stofa/eldhús), baðherbergi með sturtu og svefnherbergi. Fyrir aftan húsið er ca 50 fm timburverönd með heitum potti sem snýr í suður. Á veröndinni er ca 12fm einangraður skúr.
- Mikið endurnýjað hús
- Aukaíbúð í bílskúr
- 5 svefnherbergi
- 2 baðherbergi og gesta wc
Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi. Innaf forstofu er gestasalerni með glugga. Úr forstofu er komið inn í hol með parketi á gólfi. Á hægri hönd úr holi er komið inn í rúmgott eldhús með eyju og eldri innréttingu. Innaf eldhúsi er þvottahús, nett geymsla þar innaf, útgengi á hlið hússins. Úr holi er opið inn í bjarta og rúmgóða stofu með parketi á gólfi, útgengt á verönd sem snýr í suður. Á vinstri hönd úr holi er komið inn á svefnherbergisgang með parketi á gólfi. Á gangi er baðherbergi með sturtuklefa, upphengt wc. Fjögur svefnherbergi með nýjum teppa flísum. Bílskúrinn er skráður 47,7fm og er búið að breyta honum í aukaíbúð. Lokafrágangur er eftir að innan og utan. Nýir gluggar í bílskúr fylgja, nýtt parkett á eldhús fylgir, ný ljós og nýjar gardínur.
Húsið er vel staðsett í grónu hverfi. Stutt er í fallegar og friðsælar gönguleiðir um Fellin og vötnin í kring, Reykjalund og Álafosskvos. Mikil verslun og þjónusta er stutt frá. Leikskóli og grunnskóli eru innan hverfisins og stutt er í framhaldsskóla og íþróttasvæðið við Varmá.
Allar nánari upplýsingar veitir: Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662-6163 eða bjarni@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunarskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlufall af fasteignamati. 1.Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. 3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. 4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá 69.900kr.

Reykjavegur 74
270 Mosfellsbær
TegundEinbýlishúsStærð175,3 m²Herbergi6Svefnherb.5Baðherb.3
134.900.000 kr.770 þ./m²
Byggingarár1978InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2084319Fasteignamat125.750.000 kr.Brunabótamat93.150.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 13 myndir
Upp ↑