fasteignasölur.is
Vesturberg 36
Opið hús 8. okt. kl. 16:30–17:30
1 af 41

Um eignina

Guðbjörg Helga lgf. og Gylfi Jens lgf. hjá RE/MAX kynna Vesturberg 36, 111 Reykjavík.
Vel skipulagt og bjart fimm herbergja 127,9 fm endaraðhús á einni hæð. Byggð hefur verið létt sólstofa sem er utan fermetratölu og fallegur afgirtur garður til suðurs með tveimur góðum geymsluskúrum, viðarverönd og matjurtareitum. Afgirt viðarverönd er jafnframt fyrir framan húsið. Húsið var upprunalega með 2 svefnherbergjum, en eru nú þrjú. 16a rafmagnstenglar bjóða upp á möguleika að hlaða 2 rafmagnsbíla í stæðum uppvið húsið. Þakjárn er endurnýjað. Þinglýst yfirlýsing frá 2015 fylgir að hvert hús sjái um þak og glugga á sínum eignarhluta, svo líklega er þakjárn 10-11 ára.

Núverandi skipulag (sjá grunnteikningu, en núverandi skipulagi hefur verið breytt frá upphaflegri teikningu):
Forstofa/anddyri, Alrými (stofa/borðstofa, sjónvarpshol og eldhús), 3 svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrting, þvottahús og geymsla. Rúmgóð sólstofa til suðurs.
Afgirtur garður með tveimur geymsluskúrum og matjurtareitum. Afgirt viðarverönd fyrir framan hús til norðurs.

Nánari lýsing:
Plastparket er á gólfum fyrir utan anddyri og baðherbergi þar sem eru flísar og málað steingólf í þvottahúsi.
Forstofa: Rúmgott með fatahengi og spegill.
Geymsla: við forstofu sem nýtist m.a. sem rúmgóður fataskápur.
Gestasnyrting: Við forstofu með léttri rennihurð. Innrétting með vaski og upphengt salerni.
Alrými: Bjart og rúmgott alrými með aukinni lofthæð, sem telur stofu/borðstofu, sjónvarpshol og eldhús. Útgengt er úr stofu í sólstofu til suðurs. Gler í stofuglugga er endurnýjað.
Eldhús: er í alrými með stofu/borðstofu. Hvít háglans innrétting og stór eyja með miklu skúffuplássi. Bakaraofn í góðri vinnuhæð. helluborð og háfur. Innbyggð uppþvottavél og stæði fyrir tvöfaldan ísskáp.  
Baðherbergi: er flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtuaðstöðu. Hvít innrétting með vaski og bláum borðplötum og upphengt nýlegt salerni. 
3 svefnherbergi: Eitt rúmgott með eldri skápum eftir einum vegg, tvö minni herbergi.
Þvottahús/geymsla: Stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Vaskur og borðplata, hillur á veggjum. Útgengi út í sólstofu.
Sólstofa: 16 fm léttbyggð sólstofa sem er fyrir utan fermetratölu eignarinnar. Opnanlegir gluggar og útgengi í aflokaðan fallegan garð. Glært plexi sólstofuþak. 16a rafmagnstenglar, heitt og kalt vatn og handlaug. Sólstofan er hituð með rafmagnkyndingu. 
2 Geymslur í garðinum: Önnur er upphituð og með rafmagni og gluggum. Hin er köld útigeymsla.

          >> Sæktu söluyfirlit milliliðalaust með því að smella hér <<

          >> Sjáðu eignina betur í þrívíðri sýn (3-D) með eða án húsgagna <<

Framkvæmdir/breytingar í tíð núverandi eigenda:
- Sólstofa byggð.
- Lóð í bakgarði öll endurnýjuð með jarðvegsskiptum, hleðslusteinum og gróðurkössum.
- Auka svefnherbergi útbúið, þannig að eignin telur nú 3 svefnherbergi í stað 2ja áður.
- Endagafl hússins viðgerður með heilmúrun og málun.

Um er að ræða afar skemmtilegt raðhús með frábærri skjólgóðri útiaðstöðu á góðum stað í efra Breiðholti. 
Öll helsta þjónusta er í göngufæri, verslanir, sund og heilsurækt. Stutt er leikskóla, skóla og fjölbrautarskóla.

Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar: 
Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur s. 897 7712 og gudbjorg@remax.is
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður s. 8225124 og gylfi@remax.is

Vesturberg 36

111 Reykjavík · Berg/Hólar/Fell
TegundRað-/parhúsStærð127,9 m²Herbergi5Svefnherb.3Baðherb.2
89.900.000 kr.703 þ./m²
Byggingarár1974InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2050736Fasteignamat87.050.000 kr.Brunabótamat75.350.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 41 myndir

Upp ↑