fasteignasölur.is
Suðurvangur 12
1 af 42

Um eignina

***TÆKIFÆRI TIL ENDURBÓTA***
Aldir Fasteignir og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali – 823-2800 / monika@aldirfasteignir.is kynna:


Snyrtilega 115,5 fm íbúð á 2. hæð við Suðurvang 12 í Hafnarfirði. Skipulagi íbúðarinnar hefur verið breytt, stofan hefur verið stúkuð niður og útbúin hafa verið þrjú auk svefnherbergi í íbúðinni. Eru sex svefnherbergi í dag en hægt er að taka niður þessa veggi og breyta íbúðinni í upprunalegt horf, sbr. teikningu. Tvennar svalir, sér þvottahús innan íbúðar og sér geymsla í kjallara. 

Bókið skoðun hjá monika@landmark.is

Eignin skiptist í dag í anddyri, tvo ganga, eldhús, þvottaherbergi, stofu og baðherbergi. Íbúðin er upphaflega með þremur svefnherbergjum en útbúinn hefur verið auka gangur og þrjú auka herbergi. 
Birtar stærðir: Íbúð 115,5 fm (merkt 030201) samtals 115,5 fm. Sér geymsla í kjallara, skráð í eignaskiptayfirlýsingu 5,7 fm. 

Gólfefni er parket, korkur, flísar, og dúkur. Fataskápur í forstofu og í þremur herbergjum. 
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu, bakarofni og helluborði, gufugleypi, tengi fyrir uppþvottavél. Borðkrókur innst í eldhúsi.
Stofa er fremst í íbúð. 
Þvottaherbergi er inn af eldhúsi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, neðri skápa innréttingu með vaski og áföstum hillum. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf salerni, hvítri baðinnréttingu og baðkari með sturtu yfir.
Sex herbergi, þar af þrjú sem stúkuð hafa verið af stofu. 
Sér geymsla í kjallara. 
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign. 

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@aldirfasteignir.is


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Aldir fasteignir
69.900.000 kr.605 þ./m²
−4,2% á 1 ári
2. janúar 2026Þinglýstur kaupsamningur
73.000.000 kr.632 þ./m²
+272,4% á 19 árum
5. júlí 2006Fyrsta sala
19.600.000 kr.170 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Suðurvangur 12

220 Hafnarfjörður
TegundFjölbýlishúsStærð115,5 m²Herbergi4Svefnherb.6Baðherb.1
69.900.000 kr.605 þ./m²
Byggingarár1969InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2079975Fasteignamat72.000.000 kr.Brunabótamat62.650.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmára 14, 201Sími530-6500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 42 myndir

Upp ↑