fasteignasölur.is
Straumhella 5
1 af 18

Um eignina

Prima fasteignasala og Björgvin Þór Rúnarsson lgf. kynna eignina Straumhella 5, 221 Hafnarfjörður.

Glæsilegt endabil með flottri 3 herbergja íbúð fyrir ofan bilið við Straumhellu 5.  
Eignin er skráð nr 0114 sem er 128,8 fm á stærð og er á tveimur hæðum.
Eignin er skráð 65,6 fm skv. HMS en búið er að setja upp c.a. 63,2 fm óskráð milliloft, heildarstærð er því c.a. 128,8 fm.
Engin vsk-kvöð er á húsnæðinu.

Nánari lýsing:
Íbúðin sjálf.
Forstofa: Parket á gólfi.
Eldhús: Parket á gólfi, glæsileg innrétting með miklu skápa plássi.
Stofa/ borðstofa: Parket á gólfi, mjög rúmgóð og björt.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, falleg innrétting með speglaskáp. Sturtuklefi og tengi fyrir þvottavél.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og með fataskáp.
Barnaherbergi: Parket á gólfi og með fataskáp.

Innkeyrsluhurðir frá Hörmann með rafmagnsopnun, stærð: 325x360(BxH).
Lofthæð: c.a. 6,5m við útvegg til ca. 7,5m við mæni.

- Bil nr. 114
- Gluggar fyrir ofan innkeyrsluhurð.
- Hitun húsnæðisins er með gólfhita.
- Sameiginlegur hitavatnsmælir í inntaksklefa.
- Búið er að setja upp ræstivask.
- Rafmagn (utanáliggjandi) fullfrágengið skv. teikningum með góðum iðnaðarlömpum í lofti og útikastara fyrir ofan iðnaðarhurð.
- Sér rafmagnsmælir og rafmagnstafla fyrir hvert bil.
- Þriggja fasa tengill og 16A tengill undir töflu.
- Frárennslislagnir eru til staðar fyrir möguleika á salerni.
- Lóð verður fullfrágengin með malbikuðu bílaplani, sjá afstöðumynd.
- Burðargrind hússins er úr límtré, klædd með PIR Quad Core samlokueiningum frá Kingspan.
- Byggt á staðsteyptum sökklum og plötu.
- Veggeiningar eru 80mm á þykkt með microrib áferð. Málningarhúð á veggeiningum er valin sérstaklega til að verjast betur gegn UV-geislun (upplitun) og veðrun.
- Þak er byggt upp með 100mm þykkum PIR Quad Core samlokueiningum frá Kingspan.
- Innveggir eru gerðir úr OSB krossvið/spónaplötum í innralagi klætt með gifsi, með steinullareinangrun á milli. Tilbúnir til spörslunar og málningu.
- Gólf 1.hæðar eru járnbent, staðsteypt og vélslípuð.
- Stigi á milli hæða er byggður upp með límtrés þrepum

Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.

Björgvin Þór Rúnarsson löggiltur fasteignasali / s.8551544 / bjorgvin@primafasteignir.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.

Straumhella 5

221 Hafnarfjörður
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð65,6 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
52.500.000 kr.800 þ./m²
Byggingarár2025InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2534371Fasteignamat24.450.000 kr.Brunabótamat28.450.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSuðurlandsbraut 6, 108 ReykjavíkSími511-7030

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 18 myndir

Upp ↑