fasteignasölur.is
Hnjúkamói 8
1 af 31

Um eignina

Eignaland fasteignasala kynnir fallega og vel skipulagða 81,9 fm 3ja herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi við Hnjúkamóa 8 í Þorlákshöfn. Eignin er björt, snyrtileg og vel skipulögð í nýlegu steyptu, tveggja hæða fjölbýlishúsi sem byggt var árið 2024 og er staðsett í fallegu nýju og fallegu hverfi í Þorlákshöfn. Áhersla hefur verið lögð á góða hönnun, lágstemmt og fjölskylduvænt umhverfi og vistvæna tengingu milli húsa. Sérmerkt bílastæði fylgir eigninni og gert er ráð fyrir möguleika á hleðslustöð við bílastæði. Hellulögð verönd út frá stofu. Hnjúkamói er vel staðsettur miðsvæðis í Þorlákshöfn, í göngufæri við helstu þjónustu, skóla og íþróttasvæði. 

**** LAUS VIÐ KAUPSAMNING ****

BÓKAÐU EINKASKOÐUN:
Böðvar Reynisson Lögg.fasteignasali., í síma 7668484, tölvupóstur bodvar@eignaland.is.
Jens Magnús Jakobsson, í síma 893-1984, tölvupóstur magnus@eignaland.is

Hnjúkamói 8, 815 Þorlákshöfn, nánar tiltekið skv. FMR eign merkt 01-01, fastanúmer 252-4196, birt stærð 81,9m²  ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.


Nánari lýsing:
Forstofa: Rúmgóð forstofa með góðum fataskáp og harðparketi á gólfi.
Eldhús og stofa: Eldhús og stofa mynda bjart og notalegt alrými. Eldhúsinnrétting er með góðu skápaplássi og tækjum, m.a. innfelldri uppþvottavél og ísskáp. Frá stofu er gengið út á hellulagða verönd.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með harðparketi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi: Svefnherbergi með harðparketi og fataskáp.
Baðherbergi: Fallegt baðherbergi með flísalögðu gólfi og á sturtusvæði. Góð innrétting með vaski, spegill, upphengt salerni, handklæðaofn og opin sturta. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Sérgeymsla fylgir íbúðinni.

Vel staðsett falleg eign sem vert er að skoða



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Eignaland
59.000.000 kr.720 þ./m²
+12,4% á 3 árum
28. febrúar 2024Fyrsta sala
52.500.000 kr.641 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hnjúkamói 8

815 Þorlákshöfn
TegundFjölbýlishúsStærð81,9 m²Herbergi3
59.000.000 kr.720 þ./m²
Byggingarár2024LyftaJáFasteignanúmerF2524196Fasteignamat49.450.000 kr.Brunabótamat54.400.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðarsmára 5, 2. hæð, 200 KópavogurSími547-3900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑