Um eignina
Að utan er húsið klætt með vandaðri álklæðningu og á einhalla þaki er soðinn tjörupappi. Í íbúðinni er svæðaskiptur gólfhiti með stafrænum stjórntækjum. Harðparket er á gólfum en flísar á votrýmum. Gluggar eru vandaðir ál/tré gluggar frá IDEAL. Loft eru með dúkaklæðningu og innfelldri LED-lýsingu. Dúkaloftin skapa jafnframt góða hljóðvist í íbúðinni.
Lóðin er fullfrágengin með grasi og gróðri, leiktækjum og hellulögðum/steyptum stéttum. Malbikað bílaplan er með 27 bílastæðum og fylgir íbúðinni sérmerkt bílastæði þar sem gert er ráð fyrir hleðslustöð. Eignin er staðsett í nýju, fallegu og fjölskylduvænu íbúðarhverfi á Selfossi.
Vel staðsett: Húsið er í göngufæri við Stekkjaskóla og jafnframt stutt í aðra þjónustu, verslun, íþróttir og útivist.
Móstekkur 8, 800 Selfoss, nánar tiltekið skv. FMR eign merkt 01-02, fastanúmer 252-4327,birt stærð 127.2 fm. ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
BÓKAÐU EINKASÝNINGU:
Böðvar Reynisson löggiltur fasteignasali, sími 766-8484, netfang, bodvar@eignaland.is
Jens Magnús Jakobsson löggiltur fasteignasali, sími 8931984, netfang, magnus@eignaland.is
Skipting eignar:
Íbúðin er einstaklega vel skipulögð með þremur svefnherbergjum, rúmgóðu alrými þar sem eldhús og stofa tengjast saman, sérþvottahúsi, góðu baðherbergi og sérgeymslu. Úr stofu er gengið út á sólpall og sérflöt sem fylgir íbúðinni.
Skipulag eignarinnar:
Forstofa: Rúmgóð forstofa með innbyggðum fataskáp. Harðparket á gólfi.
Eldhús og stofa: Eldhús og stofa mynda bjart og rúmgott alrými með góðri lofthæð og stórum gluggum sem hleypa mikilli birtu inn. Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð, dökk að lit með hvítum efri skápum og innbyggðri LED-lýsingu undir efri skápum. Ljós borðplata setur fallegan svip á eldhúsið.
Heimilistæki eru frá AEG, þar á meðal innbyggður ísskápur með frysti, uppþvottavél og spanhelluborð í eldhúseyju.
Stofan er björt og notaleg og þaðan er útgengt á sólpall og sérflöt við pallinn.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með harðparketi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi II: Gott svefnherbergi með harðparketi og fataskáp.
Svefnherbergi III: Gott svefnherbergi með harðparketi og fataskáp.
Þvottahús: Sérþvottahús með góðri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í þægilegri vinnuhæð. Flísar á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott og fallegt baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf. Góð innrétting með vaski og speglaskápum, handklæðaofn og opin sturta með innbyggðum blöndunartækjum. Upphengt salerni.
Geymsla: Sérgeymsla fylgir íbúðinni. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í húsinu.
Móstekkur 8 er því afar áhugaverður kostur fyrir þá sem leita að nýlegri, vandaðri og vel skipulagðri íbúð á góðum stað á Selfossi, þar sem áhersla hefur verið lögð á góða hönnun, efnisval, þægindi og lítið viðhald.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
Móstekkur 8
Staðsetning
Allar 46 myndir
Upp ↑












































