fasteignasölur.is
Laugarbrekka 19 - 001
1 af 28

Um eignina

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955

Laugarbrekka 19 - 001, Húsavík

Um er að ræða 102,8 m2 þriggja herbergja íbúð á neðstu hæð í þriggja íbúða húsi að Laugarbrekku 19 á Húsavík. Skemmtileg staðsetning og ótrúlega gott útsýni miðað við að vera á jarðhæð.

 
Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, gang, eldhús, stofu og baðherbergi ásamt þvottahúsi og geymslu sem eru í sameign.

Forstofa er með flísar á gólfi og opið fatahengi.
Gangur er rúmgóður með parket á gólfi. 
Svefnherbergi eru tvö, annað þeirra með skáp.
Eldhús er mjög rúmgott með dúk á gólfi, góðum eldhúskrók og innréttingu með miklu skápaplássi og stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél. 
Stofa er björt og rúmgóð með parket á gólfi. 
Baðherbergi er lítið en þar eru flísar á gólfi og stærstum hluta veggja, sturtuklefi, upphengt salerni, skápur undir vasknum og opnanlegt fag á glugga.  

Af gangi er innangengt í sameiginlegt þvottahús og geymslur. 

Annað:
-Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning

-Góður pallur sem snýr til suðurs er aftan við húsið.
-Skipt var um bárujárn á þaki og húsið málað árið 2017 skv. húsfélagi
-Geymslur og þvottahús hafa verið í sameiginlegri notkun
-Rakaummerki eru neðst á útveggjum, sérstaklega í stofu
-Eignin þarf viðhalds og tekur verðið á eigninni mið af því
-Húsið þarfnast drenframkvæmda

Núverandi eigandi eignaðist hina seldu eign í skuldaskilum og getur því ekki uppfyllt upplýsingarskyldu sína. Núverandi eigandi þekkir ekki eignina umfram það sem kemur fram í opinberum gögnum, því leggur hann ríka áherslu á það við kaupanda að hann gæti sérstakrar árvekni við skoðun og leiti sér aðstoðar sérfræðinga til að meta ástand eignarinnar. Eignin selst í því ástandi sem hún er í við nákvæma skoðun kaupanda og hann sættir sig við að öllu leyti.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
halla@byggd.is
bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Laugarbrekka 19 - 001

640 Húsavík
TegundFjölbýlishúsStærð102,8 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
27.500.000 kr.268 þ./m²
Byggingarár1951InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2153122Fasteignamat33.650.000 kr.Brunabótamat50.200.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkipagötu 16, 600 AkureyriSími464-9955

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑