fasteignasölur.is
Víkurgata 6
1 af 19

Um eignina

Aldir Fasteignir og Erla Friðriksdóttir löggiltur fasteignasali s: 896-6160 / erla@aldirfasteignir.is kynna:
4 herbergja 126.6 m2 einbýlishús við Víkurgötu 6 í Stykkishólmi.

Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 95,9 m2 og geymsla er 30,7 m2, samtals 126.6 m2 að stærð.

Einstakur gullmoli í hjarta Stykkishólms – Víkurgata 6
Húsið er einstaklega fallegt 126.6 m², 4ra herbergja enbýlishús (þrjú svefnherbergi), byggt árið 1940, sem hefur verið nánast allt endurnýjað á síðustu árum. Endurbyggingin hefur verið unnin af mikilli smekkvísi og virðingu fyrir upprunalegum stíl hússins, sameinar þannig sögulegan sjarma og nútímaleg þægindi á einstakan hátt.

Nánari lýsing á eign:
Forstofa er með flísalögðu gólfi.
Baðherbergi/þvottahús er flísalagt og rúmgott með sturtuklefa.
Svefnherbergin eru með gólfborðum og panelklæddir veggir að hluta.
Eldhús og borðstofa er bjart með fallegri eldhúsinnréttingu, panelklætt að hluta, gólfborð og mikil lofthæð.
Stofa er með flotaðri steypu í gólfi, gólfhita, panell að hluta á veggjum og Drápuhlíðargrjót.
Garður/pallur er til suðurs og versturs. Pallurinn er rúmgóður og dekkið á pallinum er úr lerki. Hitaveitu pottur með stýringu. Gengið er út á pall úr stofu.
Geymsla er við húsið sem býður upp á mikla möguleika s.s. að koma fyrir gufu og innrétta sem herbergi eða litla stúdióíbúð.
Bílastæði er við húsið.
Geymsluloft er yfir hluta hússins.

Húsið hefur verið rekið með góðum árangri í skammtímaleigu á Airbnb, sem býður upp á góða tekjumöguleika fyrir þá sem hafa áhuga. Það hentar þó ekki síður sem hlýlegt og sjarmerandi heimili fyrir fjölskyldu eða sem annað heimili til að njóta í fallegu umhverfi Stykkishólms allt árið um kring.
Staðsetningin er óviðjafnanleg við gamla miðbæinn þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, veitingastaði og kaffihús. Skóli, sundlaug og íþróttasvæði eru í göngufæri, og fyrir golfáhugafólk er 9 holu völlur í Stykkishólmi rétt handan við hornið.
Hvort sem þú ert að leita að fjárfestingartækifæri, heilsárshúsi eða drauma sumarheimili þá er Víkurgata 6 sjaldséður gullmoli.

Afhending:
Eignin er tilbúin til afhendingar eftir samkomulagi.

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Erla Friðriksdóttir löggiltur fasteignasali s. 896-6160 eða erla@aldirfasteignir.is

 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Aldir fasteignir
81.900.000 kr.647 þ./m²
+355,0% á 10 árum
20. október 2016Fyrsta sala
18.000.000 kr.133 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Víkurgata 6

340 Stykkishólmur
TegundEinbýlishúsStærð126,6 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
81.900.000 kr.647 þ./m²
Byggingarár1940InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2116355Fasteignamat56.100.000 kr.Brunabótamat70.850.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmára 14, 201Sími530-6500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 19 myndir

Upp ↑