fasteignasölur.is
Þelamörk 47
1 af 43

Um eignina

Þelamörk 47 – Glæsilegt endaraðhús á einni hæð á frábærum stað í Hveragerði

Eignaland fasteignasala kynnir fallegt og vel skipulagt 129 fm endaraðhús við Þelamörk 47 í Hveragerði.
Húsið er byggt árið 2021 og stendur á einstaklega skjólgóðum og fallegum stað í hverfinu. Um er að ræða bjart og rúmgott heimili á einni hæð með þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, sérþvottahúsi, góðu alrými, sólpalli og fallegum útisvæðum.
Eignin er sérstaklega áhugaverð fyrir þá sem vilja búa í nýlegu og viðhaldslitlu húsi á einni hæð. Þelamörk er á rólegum og fjölskylduvænum stað í Hveragerði, miðsvæðis í bænum. Stutt í skóla, leikskóla, íþróttasvæði, verslun og aðra þjónustu.


Eignin Þelamörk 47 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 251-5854, birt stærð 129.0 fm, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi

BÓKAÐU EINKASÝNINGU:
Böðvar Reynisson Lögg.fasteignasali., í síma 766-8484, tölvupóstur bodvar@eignaland.is.
Jens Magnús Jakobsson Lögg.fasteignasali., í síma 8931984, tölvupóstur magnus@eignaland.is.



Nánari lýsing eignar:
Anddyri: Rúmgott anddyri með harðparketi á gólfi og góðu aðgengi að öðrum rýmum hússins. Úr anddyri er einnig lúga upp á geymsluloft sem gefur gott aukageymslupláss.
Eldhús og stofa: Eldhús og stofa mynda bjart og rúmgott sameiginlegt alrými. Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu, góðu skápaplássi og innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Stofan er rúmgóð og björt með uppteknu lofti sem gefur rýminu skemmtilega tilfinningu fyrir rými og birtu. Úr stofu er gengið út á sólpall og áfram út í skjólgóða baklóð.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum og harðparketi á gólfi. Inn af herberginu er sérbaðherbergi sem eykur verulega á þægindi og einkalíf.
Sérbaðherbergi við hjónaherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með sturtu, handlaug og upphengdu salerni.
Svefnherbergi II: Gott svefnherbergi með harðparketi og innbyggðri lýsingu.
Svefnherbergi III: Gott svefnherbergi með harðparketi og innbyggðri lýsingu.
Baðherbergi: Rúmgott og fallegt baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf. Þar er góð innrétting með handlaug, góðu skápaplássi og speglaskáp, handklæðaofn, upphengt salerni og opin sturta með glerþili.
Þvottahús: Sérþvottahús með flísum á gólfi, skolvaski og góðri innréttingu með skápaplássi. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.

Útisvæði og lóð:
Eignin nýtur góðs af því að vera endaraðhús og er með skjólgóðri baklóð og góðum sólpalli. Lóðin er fullfrágengin og við húsið er steypt sorptunnuskýli. Malbikað bílaplan er við húsið með góðu plássi fyrir þrjá bíla og hellulögð stétt liggur að anddyri.
Gert er ráð fyrir möguleika á heitum potti við húsið og ídráttarrör fyrir heitan pott eru til staðar báðum megin við húsið. Einnig er gert ráð fyrir hleðslumöguleika fyrir rafbíla.

Húsið:
Húsið er staðsteypt og byggt árið 2021. Það er einangrað að utan og klætt með ál- og timburklæðningu. Þakið er einhalla timburþak með Protan þakdúk. Gluggar eru trégluggar frá Gluggasmiðju Selfoss með tvöföldu K-gleri. Gólfhiti er í öllu húsinu og forhitari er til staðar.

Staðsetning:
Hveragerði er vinsæll búsetukostur fyrir þá sem vilja sameina rólegt og fjölskylduvænt umhverfi við góða tengingu við höfuðborgarsvæðið. Þá eru útivistarmöguleikar fjölbreyttir og náttúran allt í kring.

Þelamörk 47 er fallegt, vel skipulagt og vandað heimili á góðri lóð með öllu því helsta sem nútíma fjölskylda þarf – á einni hæð og á eftirsóttum stað í Hveragerði.



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

Þelamörk 47

810 Hveragerði
TegundRað-/parhúsStærð129 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.2
87.500.000 kr.678 þ./m²
Byggingarár2021InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2515854Fasteignamat88.100.000 kr.Brunabótamat77.150.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðarsmára 5, 2. hæð, 200 KópavogurSími547-3900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 43 myndir

Upp ↑