fasteignasölur.is
Klettahraun 10
1 af 70

Um eignina

Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu glæsilegt 2ja hæða einbýlishús með 2ja hæða bílskúr á einkar eftirsóttum stað miðsvæðis í Hafnarfirði að Klettahrauni 10. Húsinu hefur verið vel við haldið alla tíð. Stór, gróin og fallegur ævintýragarður og skemmtileg lóð.

Bókið einkaskoðun hjá Aðalsteini á netfanginu alli@trausti.is
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit  -  Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Eignin er skráð samkvæmt HMS 315,3 fm og þar af er bílskúr skráður 34,8 fm.
2 stofur, 5 svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, gestasalerni, 2ja hæða bílskúr og þvottahús.

Nánari lýsing:
Efri hæð:
Forstofa
er rúmgóð með flísar og náttúrustein á gólfi.
Gestasalerni við forstofu flísalagt í hólf og gólf með upphengt salerni.
Hol með náttúrustein á gólfi.
Stofa og borðstofa mjög rúmgóð og björt með frábært útsýni.
Eldhús er stórt með góðri innréttingu, innbyggðan ísskáp og uppþvottavél. Steinn á borðum og gott pláss til að sitja við. Þrískipt helluborð með 3 gashellur og 2 span. Útgengt á bílastæði við gönguhurðir í bílskúr.
3 svefnherbergi á hæðinni og eru öll mjög rúmgóð. Útgengt í garð úr einu herbergjanna.
Baðherbergi með góða innréttingu, náttúrstein og flísar á gólfi og flísar á vegg að stærstum hluta. Bæði góð "walk-in" sturta og baðkar, upphengt salerni, handklæðaofn og gluggi.
Timburstigi niður á neðri hæð. Ekki full lofthæð á neðri hæð.
Gangur með flísar á gólfi og skemmtilega gólflýsingu.
Stofa/sjónvarpsstofa er mjög rúmgóð með parket og teppi á gólfi. Útgengt í garð.
2 svefnherbergi eru á hæðinni og eru bæði mjög rúmgóð með parket á gólfi.
Innangengt á neðri hæð bílskúrs með steyptu gólfi. Útgengt í garð.
Þvottahús til hliðar við bílskúr og þar er gott vinnupláss, skolvaskur og flísar á gólfi.
Bílskúr efri hæð er rúmgóður með kalt rennandi vatn, rafmagn og hitaveitu.

Fallegt fjölskylduhús á frábærum stað í Hafnarfirði. Miðbær og hjarta Hafnarfjarðar í göngufæri og stutt í bæði leik-, grunn- og menntaskóla sem og alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is.


 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Klettahraun 10

220 Hafnarfjörður
TegundEinbýlishúsStærð315,3 m²Herbergi7Svefnherb.5Baðherb.2
199.500.000 kr.633 þ./m²
Byggingarár1965InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2077029Fasteignamat182.950.000 kr.Brunabótamat148.100.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 70 myndir

Upp ↑