1 af 41
Um eignina
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir kynnir til sölu eign Ríkissjóðs Íslands, að Geldingalæk, 851 Hellu skammt frá Gunnarsholti og Ketilhúshaga (tengivegur nr. 268). Um er að ræða mannvirki á 3,5 ha stofnaðri leigulóð með landnúmer 219997 og fastanúmer 224-5382. Eignin samanstendur af reisulegu aðalhúsi, upphaflega byggðu 1954, sem er 591,7 fm á þremur hæðum auk kjallara, og fjárhúsi, byggðu 1950, alls 263,8 fm. Húsið hýsti meðferðarheimili fyrir ungmenni og er skráð sem slíkt.
Jarðhæð
Endurbætur og framkvæmdir
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá FSRE eða með því að senda tölvupóst á eignasala@fsre.is
Seljandi þekkir ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum. Því leggur seljandi ríka áherslu á að sérstakrar árvekni sé gætt við skoðun og úttekt á eigninni og veitir FSRE allan nauðsynlegan aðgang til þess.
Jarðhæð
- Rúmgott anddyri og sameiginleg parketlögð rými
- Björt borðstofa með útgengi á sólpall til suðurs
- Tvö svefnherbergi, annað með fataskáp
- Eldhús með góðri vinnuaðstöðu og miðlægum háfi
- Stigar í sitthvorum enda hússins sem tengja allar hæðir
- Stórt herbergi innaf sameiginlegu rými með innréttingu
- Tvö minni herbergi
- Flísalagt anddyri og útgangur á vesturhlið
- Rúmgott sameiginlegt rými (skólastofa) með innréttingu og stiga upp í ris
- Tvö svefnherbergi með fataskápum, auk fimm annarra herbergja í vesturhluta
- Baðherbergi með sturtu í vesturhluta og snyrting með klósetti í austurhluta
- Góð geymsla
- Opin rými og tvö herbergi
- Stórt þvottahús
- Þrjú rúmgóð herbergi þ.á.m. eitt 35 fm
- Baðherbergi með tveimur walk-in sturtum og búningsaðstöðu
- Byggt 1950
- Í dag eru básar fyrir um 10 hesta
- Húsið hefur fengið lítið viðhald og þarfnast endurbóta, m.a. á vatnslögnum
Endurbætur og framkvæmdir
- Skýrslur EFLU (febrúar og mars 2024) sýna að mygla fannst í húsinu, sérstaklega í kjallara. Nauðsynlegt er að ráðast í dren, yfirferð og endurnýjun rafmagns- og vatnslagna
- Baðherbergi og gólfefni að hluta endurnýjuð 2021
- Ný 7 5/8“ neysluvatnshola var boruð mars 2024, en hún hefur ekki verið tengd húsi
- Lagfæringar á þakplötum og dren við húsið eru nauðsynlegar
- Á bæjarstæðinu er hellir sem telst til fornleifa
- Hitun hússins er með rafmagnskútum og þrýstijafnara fyrir heitt vatn
- Við sölu verður gerður 50 ára leigusamningur um lóðina samhliða kaupsamningi:
- Leiguverð fyrir atvinnurekstur: allt að 351.778 kr. á ári
- Leiguverð fyrir íbúðarhúsnæði: allt að 194.000 kr. á ári
- Stórt, fjölhæft hús með mikla möguleika – tilvalið fyrir ýmsa þjónustustarfsemi, eins og rekstur gistiheimilis eða íbúðarhúsnæði
- Rúmgóð og björt rými sem bjóða upp á fjölbreytta nýtingu
- Glæsilegt umhverfi í sveitasælunni á Suðurlandi
- Tækifæri fyrir rétta aðila að skapa verðmæta og einstaka eign með endurbótum
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá FSRE eða með því að senda tölvupóst á eignasala@fsre.is
Seljandi þekkir ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum. Því leggur seljandi ríka áherslu á að sérstakrar árvekni sé gætt við skoðun og úttekt á eigninni og veitir FSRE allan nauðsynlegan aðgang til þess.
Geldingalækur
851 Hella (dreifbýli)
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð855,5 m²Herbergi16
Tilboð
Byggingarár1954FasteignanúmerF2245382Fasteignamat83.410.000 kr.Brunabótamat261.200.000 kr.
Allar 41 myndir
Upp ↑







































