fasteignasölur.is
Flyðrugrandi 14
Opið hús 7. okt. kl. 16:45–17:30
1 af 28

Um eignina

Opið hús miðvikudaginn 7. september frá kl 16:45 til 17:30 - Flyðrugrandi 14, 107 Reykjavík - íbúð 0306
 
Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: 

 
Falleg, björt og talsvert endurnýjuð íbúð með stórum og sólríkum svölum á rólegum og fjölskylduvænum stað við Flyðrugranda í Vesturbænum.
Íbúðin er skráð 73 m2, þar af  sérgeymsla í kjallara 5,5 fm.
Eignin er teiknuð þriggja herbergja, (var áður herbergi í hluta af stofu). 

Bókið skoðun hjá Ólafi M. Ólafssyni löggiltum fasteignasala s. 865-8515 / olafur@hibyli.is  

Nánari lýsing:
Forstofa
: Harðparket á gólfi, fataskápur. Veggskápar á vinstri hönd.
Eldhús: svört viðarinnrétting, eldunareyja, gott skápapláss, harðparket á gólfi, opið við stofu. 
Setustofa: Mjög rúmgóð og björt, harðparket á gólfi, útgengi á stórar svalir sem snúa í suðvestur, svalirnar sem eru mjög skjólgóðar og sólríkar eru mikil viðbót við íbúðina. Búið er að taka niður aukasvefnherbergi íbúðarinnar og stækka stofuna, lítið mál væri að slá aftur upp herberginu.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, hvít innrétting, baðkar. 
Svefnherbergi: Harðparket á gólfi, fataskápar. 

Íbúðinni fylgir 5,5 fm sérgeymsla í kjallara.
Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð þaðan sem farið er beint út í garð.  

Gler, gluggar og svalahurð innan íbúðar voru endurnýjuð 2018 nema innsti glugginn í svefnherberginu sem var endurnýjaður 2024.

Frábær staðsetning og barnvænt umhverfi - stutt í skóla, leikskóla og íþróttasvæði KR. Öll helsta verslun og þjónusta í næsta nágrenni - göngufæri við miðborgina og Háskólann.
Melabúðin og sundlaug Vesturbæjar í næsta nágrenni. 


Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu olafur@hibyli.is
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is
Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / ingibjorg@hibyli.is

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Híbýli
69.800.000 kr.956 þ./m²
+18,3% á 3 árum
29. júní 2023Þinglýstur kaupsamningur
59.000.000 kr.837 þ./m²
+3,5% á 1 ári
8. júní 2022Þinglýstur kaupsamningur
57.000.000 kr.809 þ./m²
+43,2% á 2 árum
22. júní 2020Fyrsta sala
39.800.000 kr.565 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Flyðrugrandi 14

107 Reykjavík · Vesturbær
TegundFjölbýlishúsStærð73 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
69.800.000 kr.956 þ./m²
Byggingarár1979InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2025595Fasteignamat66.200.000 kr.Brunabótamat45.200.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangKringlunni 4-6, 103 ReykjavíkSími585-8800

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑