fasteignasölur.is
Virkisás 22 - auka íbúð.
1 af 57

Um eignina

Afar fallegt einbýlishús á tveimur hæðum með rúmgóðri auka íbúð við Virkisás 22 í Áslandi 4, Hafnarfirði. Húsið er skráð 315,9 fm að stærð samkvæmt fmr og stendur vel í götunni, skipting eignarinnar er eftirfarandi: Íbúðarhlutinn er 280,8 fm og bílskúrinn er 35,1 fm, um er að ræða nýtt hverfis vel skipulagt með fallegum sérbýlum.

Samkvæmt upplýsingum frá eiganda mun eignin afhendast með eftirfarandi hætti:

Rafmagn verður fullfrágengið, þ.m.t. tenglar og ljós.
Baðherbergi verður fullfrágengið með salerni, sturtugleri, handklæðaofni og sturtutækjum. Innréttingar fylgja ekki.
Eignin verður fullmáluð og spörsluð.
Aukaíbúð verður fullfrágengin og komin í útleigu.
Öll flísalögn verður fullfrágengin.
Lóð verður grófjöfnuð.

Það sem verður ófrágengið við afhendingu eru:
Parket.
Innréttingar.


Skipting eignar (sjá nánar á teikningum):
Efri hæð:
Rúmgóð forstofa, gestasalerni, stórt bjart alrými sem saman stendur af borðstofu, stofu og eldhúsi, hjónasvítu með fata- og baðherbergi,
innangengt inn í bílskúrinn úr forstofunni, hann er bjartur með stórum glugga, afar fallegur setu gluggi í alrýminu, útgengt úr eldhúsinu út á verönd. Köld úti geymsla undir stiganum.
Neðri hæð: Komið er niður stiga inn á gang, fjögur rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús, útgengt er úr neðri hæðinni út á rúmgóða verönd þar er teiknaður heitur og kaldur pottur.
Auka íbúð: Forstofa, stofa, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og þvottaaðstaða, auka íbúðin er alveg sér og því ætti maður að finna litið fyrir henni.

Um er að ræða glæsilegt hús á þessum fallega stað þar sem stutt er í falleg útivistarsvæði og alla helstu þjónustu, eign sem bíður upp á mikla möguleika og vert er að skoða.

Nánari upplýsingar veitir: 
Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

 

Virkisás 22 - auka íbúð.

221 Hafnarfjörður
TegundEinbýlishúsStærð315,9 m²Herbergi9Svefnherb.6Baðherb.3
209.000.000 kr.662 þ./m²
InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2523426Fasteignamat27.850.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 17, 220 HafnarfjörðurSími520-2600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 57 myndir

Upp ↑