fasteignasölur.is
Fellsmúli 6
1 af 20

Um eignina

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Opna og rúmgóða 4ra til 5 herbergja íbúð á 4. hæð (efsta hæð) í snyrtilegu fjölbýli. Gott útsýni. Íbúðin er í næsta nágrenni við leikskóla, grunnskóla, Miðbær og Austurver verslunarkjarnar, Skeifan, Kringlan, brú yfir Miklubraut o.fl. Staðsetning er miðsvæðis og stutt í alla þjónustu og verslun.

Íbúðin er 112,6 fm (merkt 03-0401) og geymslan er 4,7 fm (merkt 03-0003) samtals er eignin skráð 117, 3 fm skv skráningu Þjóðskrá Íslands.

Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is

Forstofa er með flísum á gólfi að hluta og parketi. Geymsluskápur er við inngang.
Hol er með parketi á gólfi.
Stofa er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á suðvestur svalir.
Eldhús er með flísum á gólfi og hluta veggja, hvít innrétting og flísar á milli efri og neðri skápa.
Svefnherbergin eru 4 og eru með parketi á gólfi og skápum.
Baðherbergi er með flísum í hólf og gólf, baðkar með sturtu, upphengt wc, skápar undir og yfir vask.
Þvottahús er á baðherbergi, tengi fyrir þvottavél.
Geymsla er í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
 

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Fellsmúli 6

108 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð117,3 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.1
73.400.000 kr.626 þ./m²
Byggingarár1964InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2015679Fasteignamat78.250.000 kr.Brunabótamat60.450.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangLyngás 11, 210 GarðabærSími511-0900 / 661-7788

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 20 myndir

Upp ↑