fasteignasölur.is
Sjávargata 6 eignarhluti 101
1 af 8

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Sjávargata 6, eignarhluti 101 – Rúmgott atvinnu- og geymsluhúsnæði á góðum stað við höfnina á Árskógsandi.  


Eignin er samtals 637,9 m² að stærð og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, meðal annars fyrir geymslu, iðnaðarstarfsemi og hafnsækna starfsemi.
Húsið er steinsteypt og með skráð byggingarár 1986. Eignarhlutinn samanstendur að stærstum hluta af stórum og opnum sal, auk tveggja afstúkaðra rýma sem nýtast sem "bílskúrar" og eru með innkeyrsluhurðum.
Aðkoma er að húsnæðinu um port á austurhlið hússins. Þar er rafdrifin innkeyrsluhurð, um 3,4 m á breidd og 2,9 m á hæð, sem auðveldar aðkomu ökutækja og flutning að og frá húsnæðinu.
Eignin hefur ekki verið í fullri notkun um nokkurt skeið og gera þarf ráð fyrir að yfirfara/endurnýja vatns- og raflagnir áður en húsnæðið er tekið í fulla notkun.
Lóðin er 1.544 m² leigulóð og er hún í óskiptri sameign.

Húsnæðið getur hentað vel undir geymslu- og lagerstarfsemi, verkstæði, léttan iðnað, hafnsækna starfsemi eða aðra atvinnustarfsemi þar sem þörf er á rúmgóðu húsnæði.

Eignin er laus til afhendingar í maí 2027

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
 

Sjávargata 6 eignarhluti 101

621 Dalvík (dreifbýli)
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð637,9 m²
49.500.000 kr.78 þ./m²
Byggingarár1986InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2544507Fasteignamat29.800.000 kr.Brunabótamat140.850.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 8 myndir

Upp ↑