Um eignina
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@aldirfasteignir.is.
Nánari lýsing.
Forstofa: Sérinngangur frá svalagangi, tvöfaldur fataskápur. Flísar á gólf.
Hol/skáli: Tengir saman aðrar vistarverur íbúðar. Parket á gólfi.
Eldhús: Falleg lökkuð innrétting (GKS), mikið skápapláss, góð vinnuaðstaða, ofn í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og flísar á milli borðplötu og efri skápa. Á gólfi er parket og í eldhúsi er gluggi til norðurs.
Borð- og setustofa: Parket á gólfi. Stórir gluggar til suðurs og útgengi úr stofu á 9,4 fm suðursvalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott. Parket á gólfi, fataskápur.
Barnaherbergi: Parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Lökkuð eikarinnrétting með góðu skápaplássi. Flísar á gólfi og veggjum, baðkar með sturtuaðstöðu og sturtugleri, upphengt salerni, handklæðaofn.
Þvottahús/búr: Í sér rými inn af eldhúsi. Léttar hillur og hvít innrétting með góðu skápaplássi og þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Á gólfi eru flísar.
Íbúð tilheyrir sér stæði í lokaðri bílageymslu (B-01) þar sem er tengi fyrir bílhleðslustöð auk þvottaaðstöðu, sérgeymsla (0108) og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Falleg eign í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í matvöruverslanun, leik- og grunnskóla, Kórinn íþróttamiðstöð og fallega náttúru.
Allar nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@aldirfasteignir.is.
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.
Verðsaga
4 þinglýstir kaupsamningarHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Baugakór 18
Staðsetning
Allar 29 myndir
Upp ↑



























