fasteignasölur.is
Stafafellsfjöll 25 a
1 af 25

Um eignina

LÆKKAÐ VERÐ
SUMARHÚS Í STAFAFELLSFJÖLLUM Í LÓNI HORNAFIRÐI. Valhöll fasteignasala
Síðumúla 27, Sími: 588-4477 og Snorri Snorrason.  Lg.fs.  Sími: 895-2115 eða snorri@valholl.is, kynna til sölu  Stafafellsfjöll 39A í Lóni í Hornafirði   sem er  er sumarhús byggt 2010  úr timbri og skráð í FMR 58,1 m²  ásamt góðri verönd

Stafafellsfjöll í Lóni er paradís í 20 min aksturfjarlægð frá Höfn, þar er stórbrotið landslag, mikil litadýrð í fjöllum og mikið af frábærum gönguleiðum, t.d inn í Kollumúla yfir göngubrú á Jökulsá.
Smellið hér fyrir staðsetningu.
Húsið stendur í góðu skjóli upp með ágætu útsýni. Á lóðinni er borhola fyrir neysluvatn og rotþró. Geymsla  óeinangruð  með sér inngangi er sambyggð húsinu

Húsið skiptist í gott miðrými  með  eldhúsinnréttingu, baðherbergi m/tengi fyrir þvottavél og 2 svefnherbergi. Gólfefni parket á öllum gólfum. Eldhúsinnréttingin  er með viðarfrontum.  Stor sturtuklefi og hvít hreinlætistæki eru á baði Innrétting, fyrir þvottavél og skápar. Svefnloft er yfir hluta af miðrými og geymsluloft er yfir báðum herbergjum.
Í geymslunni er hitakútur fyrir neysluvatn og rafmagnstafla. 2x220v rafmagnsheimtaug er í húsinu, svo og móttakari  og rauder fyrir internet.
 Samkomulag verður um hvað mikið af innbúi fylgir með í kaupunum.
Húsið er timburhús  með veröndum allan hringin og nær þakið yfir vel útfyrir húsið og yfir hluta af veröndunum.


 Lóðin er afgirt  3694 fm, leigulóð lóðarleiga er 41.326 kr. á ári vísitölubundin miðað við mars 2009. Lóðarleigusamningur rennur út 2025. Seljandi mun láta gera nýjan lóðarleigusamning fyrir kaupsamning.

Nánar um skipulag í Stafafellsfjöllum
Á skipulagssvæðinu eru skilgreindar alls 78 lóðir undir frístundarhús. Á hverri lóð er heimlit að byggja allt að 3 hús, sem fer þó eftir stærð lóða.  Frístundarhús/aðalhús má vera allt að 120fm og ekki minni en 30fm.  Aukahús/gestahús getur verið allt að 30fm. þó ekki stærra en helmingur af stærð aðalhúss. 
Geymsla getur verið allt að 25fm. Á lóðum sem eru 6000fm og stærri er leyfilegt byggingarmagn allt að 180fm en á minni lóðum takmarkast það við nýtingarhlutfallið 0,03
 Vatnsöflun á svæðinu er á ábyrgð hvers lóðareiganda.  Allt sorp verður að setja í gám sem er staðsettur við Jökulsárbrú.
Sjá nánari upplýsingar um deiliskipula fyrir Stafafellsfjöll frá 10.12. 2014 nr 12296 á undir neðangreindum slóðum:
http://skipulagsaaetlanir.skipulagsstofnun.is/skipulagvefur/DisplayDoc.aspx?itemid=04635507136694766017
http://skipulagsaaetlanir.skipulagsstofnun.is/skipulagvefur/DisplayDoc.aspx?itemid=04635507137078681216

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Stafafellsfjöll 25 a

781 Höfn (Hornafjörður)(dreifbýli)
TegundSumarhúsStærð58,1 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
18.000.000 kr.310 þ./m²
Byggingarár2010InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2321365Fasteignamat20.250.000 kr.Brunabótamat29.700.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSíðumúli 27, 108 ReykjavíkSími588-4477

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑