Um eignina
Við opnum snemma og lokum aldrei!!!
Fasteignasala Akureyrar kynnir:
Mjög góð 90m2 íbúð á annarri hæð í miðbænum, eign í mjög góðu ástandi.
Eignin skiptist í forstofu, stofu og borðstofu, tvö svefnherbergi, eldhús og bað.
Á gólfi í forstofu, holi, stofu og herbergjum er gott parket, þrefalt gler í gluggum sem snúa út að götu.
Í eldhúsi er hvít innrétting með gráum borðplötum, hvít eldavél, ísskápur fylgir, úr eldhúsi er gengið út á svalir til austurs.
Baðherbergi er með Terrasoefni á gólfi, sturtuklefi, hvít hreinlætistæki, handlaug og salerni.
Á jarðhæð er sameiginlegt þvottahús og annar inngangur í húsið
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 arnar@fastak.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skipagata 1
Staðsetning
Allar 10 myndir
Upp ↑








