Opið hús 8. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 34Um eignina
Eignamiðlun kynnir:
Mjög vel skipulögð, rúmgóð og björt 86,4 fermetra þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með stórum afgirtum sólpalli til suðurs - talsvert endurnýjuð af núverandi eigendum. Stór stofa með gluggum í tvær áttir, hálf-opið eldhús, tvö rúmgóð herbergi, baðherbergi með rými fyrir þvottavél og þurrkara, forstofurými með fataskáp. Heildareignin er sem fyrr segir 86,4 fermetrar sem skiptist í 81,6 fermetra íbúð merkt 03-0103 og 4,8 fermetra geymslu á jarðhæð merkt 03-0104. Gott rými er í kringum húsið, mikil birta og ágætt bílastæði. Góð staðsetning, stutt í skóla, leikskóla, Smáralind og aðra þjónustu.Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is
Komið er inn í mjög snyrtilegan stigagang með flísum á anddyri og teppum á stiga. Þegar gengið er inn í íbúðina er komið inn í flísalagða forstofu með stórum viðarlitum fataskáp. Til hægri frá forstofu eru tvö rúmgóð svefnherbergi, hjónaherbergi er með fataskáp á heilum vegg og barnaherbergi með minni skáp; fataskapar eru nýir. Flísalagt baðherbergi, ljósar flísar á veggjum en dekkri á gólfi, þar sem búið er að sameina þvottahús og baðherbergi í eitt rými til að fá betra pláss. Gott rými er fyrir þvottavél og þurrkara í þar til gerðu skoti. Handklæðaofn, hiti í gólfi.
Til vinstri frá forstofu eru eldhús og stofa. Gengið er í eldhúsið úr tveimur áttum, en eldhúsinnrétting er ágætlega stór á tveimur veggjum, viðarlituð með flísaplötum á milli skápa, svörtum borðplötum og svörtum vaski. Borðplötur, vaskur og veggflísar er nýtt. Eldhús er opið að borðstofurými. Stofan er björt og rúmgóð, gluggar í tvær áttir og dyr út á 30 fermetra sólpall til suðurs. Pallurinn er sagður gerður úr lerki, með góðum skjólveggjum og hliði. Baðherbergi er flísalagt á veggjum og á gólfi, með baðkari og sturtu ásamt innréttingu.. Plastparket er á gólfum, steinflísar á eldhúsi og forstofu. Geymsla á hæðinni auk hjólageymslu og vagnageymslu.
Mjög vel skipulögð íbúð, sérlega björt og vistleg stofa og eldhús. Góð staðsetning.
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegi 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Funalind 5
201 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð86,4 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
72.900.000 kr.844 þ./m²
Byggingarár1997InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2228431Fasteignamat67.500.000 kr.Brunabótamat48.800.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 34 myndir
Upp ↑
































