Um eignina
Eigin er skráð alls 89,9 fm. og þar af er geymsla 3,2 fm.
Eignin var endurnýjuð töluvert 2018:
Eldhús og baðinnréttingar endurnýjaðar ásamt því að baðherbergi var flísalagt að hluta.
Rafmagn hefur verið endurnýjað að hluta og rafmangstafla endurnýjuð.
Skipt var um ofna og ofnalagnir yfirfarnar og lagaðar eftir því sem þurfti.
Skipt var um frárennsli að plötu 1. hæðar.
Blokkin hefur verið sprunguviðgerð og verður máluð að utan sumarið 2026 á kostnað seljanda.
Nánari lýsing:
Anddyri/Hol með fataskáp og parketi á gólfi.
Eldhús með fallegri innréttingu með helluborði, ofni og viftu. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og parketi á gólfi.
Stofa með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt út á svalir.
Svefnherbergin tvö eru með parketi á gólfi, góður fataskápur er í öðru þeirra.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta til. Þar er innrétting við vask og baðkar með sturtu.
Geymsla íbúðar er á jarðhæð.
Í sameign er þvottaaðstaða á fyrstu hæð og er sameiginleg fyrir allar íbúðirnar en hver íbúð með tengi fyrir sína vél, dúkur á gólfi.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Skógarbraut 914
Staðsetning
Allar 25 myndir
Upp ↑























