fasteignasölur.is
Brekkuholt 7a
1 af 55

Um eignina

Guðbergur og fasteignasalan Bær kynna: Brekkuholt 7A Reykholti. 213,8 fm parhús á fallegri útsýnislóð í nýlegu hverfi.  Svefnherbergin eru fjögur, tvö baðherbergi, fullbúið eldhús, stofa með fallegu útsýni, tveir sólpallar og rúmgóður bílskúr.
Húsið er á einni hæð og klætt að utan með viðhaldsléttri klæðningu og gluggar/hurðir eru ál/tré. 

Nánari lýsing: Anddyri
 er með flísum á gólfi og stórum skáp. Flísalagður gangur. Svefnherbergin eru þrjú með harðparket á gólfum og með góðri lofthæð. Rúmgott hjónaherbergi er inn af stofu og er ca. 38 fm og í því er fataherbergi og baðherbergi með sturtuklefa, innréttingu og upphengdu klósetti. Einnig er rennihuð úr svítunni út á pall. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, innrétting, upphengt salerni, stór sturta og frístandandi baðkar. 
Stofa og eldhús eru í opnu rými og einstakt útsýni er út um stofugluggann. Eldhús með stórri sérsmíðaðri innréttingu með quart stein, eyju og vönduðum snjallvænum heimilistækjum.
Stofan er mjög björt og rúmgóð og er rennihurð út á stóra timburverönd með glæsilegu útsýni. Á sólpalli er heitur pottur og dekk pallsins er rásaður viður. Geymsluskúr er  á sólpalli.
Inn af eldhúsi er gott þvottahús sem er flísalagt og með góðri innréttingu.

Upptekið loft er í öllu húsinu og innfelld ledlýsing er í flestum rýmum hússins sem hægt að stjórna úr símum og m.a. skipta um lit o.fl. 
Gólfhitakerfi er í húsinu með digital stýringum fyrir hvert rými.
Bílskúr er flísalagður, björt lýsing og rafstýrð innkeyrsluhurð. Bílaplan er hellulagt með lokuðu snjóbræðslukerfi og sólpallur er einnig fyrir framan hús.  
Til hliðar við húsið er búið að jarðvegsskipta og þar er mjög gott pláss fyrir stóra bíla eða hjólhýsi/kerru. Köld geymsla er innan við stæðin.
Frábær eign, vel skipulögð, stórir sólpallar, stórt hjónaherbergi með baðherbergi, falleg staðsettning og frábært útsýni.

Pantið einkaskoðun: beggi@fasteignasalan.is eða sími 8936001
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbergur Guðbergsson löggiltur fasteignasali s 8936001 beggi@fasteignasalan.is

Brekkuholt 7a

806 Selfoss (dreifbýli)
TegundRað-/parhúsStærð396,3 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.2
115.000.000 kr.290 þ./m²
Byggingarár2021InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2513193Fasteignamat155.100.000 kr.Brunabótamat211.050.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkútuvogur 10F, 104 ReykjavíkSími512-3400

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 55 myndir

Upp ↑