fasteignasölur.is
Brekkuland 8
Opið hús 12. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 52

Um eignina

Aldir fasteignir kynna:

Virkilega fallegt og vel skipulagt einbýlishús með stórum sérstæðum bílskúr á fallegum stað í Mosfellsbæ. Eignin er skráðir 232,50 fm, þar af er bílskúr 60,2 fm skv skráningu í þjóðskrá. Einnig er 45 fm. óskráð vinnustofa við hliðina á bílskúr, eignin er í raun 277 fm. Húsið er á tveimur hæðum, vel skipulagt og samanstendur meðal annars af fimm svefnherbergjum, eldhúsi, þvottahúsi / búri, sjónvarpsstofu, bjartri stofu og borðstofu með útgengi út á sólpall með heitum potti.  Eignarlóð 1422 fm er í kringum húsið og geymsluskúr í garðinum á bakvið bílskúr. Stórt steypt bílaplan fyrir framan húsið. Eignin er einstaklega vel staðsett innan hverfisins með óbyggðu svæði bak við.  Róleg staðsetning í rótgrónu hverfi. Eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar veita:
Þórarinn Thorarensen sölufulltrúi s. 770-0309 / th@aldirfasteignir.is
Sveinn Eyland lögg. fast. s. 6 900 820 / sveinn@aldirfasteignir.is

Nánari lýsing: 
Anddyri, flísalagt með fataskáp og fatahengi .
Gestasnyrting með sturtuklefa, salerni og handlaug.   
Miðrými með harðparket á gólfi.   
Forstofuherbergi með parket á gólfi.  
Eldhús með viðarinnréttingu, flísar á milli skápa og harðparket á gólfi.  Span helluborð, tengi fyrir uppþvottavél og góður borðkrókur við glugga.
Þvottahús / Búr er mjög rúmgott, dúkur á gólfi og gott hillupláss, útgengi út í garð.
Stofa / Borðstofa rúmgóðar og bjartar með harðparketi á gólfi og útgengi út á sólpall með heitum potti og þaðan út í garð. 
Tréstigi er á milli hæða.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi  fataskápum, útgengi út á stórar svalir.
Þrjú svefnherbergi með  parketi á gólfi og fataskápum
Rúmgóð sjónvarpsstofa með parketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og hluta af veggjum, góðar innréttingar, baðkar og gluggi.
Geymsluskúr er í garðinum bak við bílskúr.  

Rúmgóður bílskúr 60 fm með vinnuborði, tveimur bílskúrshurðum og bílalyftu.
45 fm. vinnstofa, óskráðir fermetrar.   Bílskúrshurð og gönguhurð. 
Stórt bílaplan fyrir framan eignina.

Eignarlóð 1422,6 fm. í góðri rækt.

 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Brekkuland 8

270 Mosfellsbær
TegundEinbýlishúsStærð232,5 m²Herbergi7Svefnherb.5Baðherb.2
149.900.000 kr.645 þ./m²
Byggingarár1982InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2083172Fasteignamat141.950.000 kr.Brunabótamat106.000.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmára 14, 201Sími530-6500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 52 myndir

Upp ↑