fasteignasölur.is
Hafnargata 73
Opið hús 12. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 19

Um eignina

Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:

Hafnargata 73, 230 Reykjanesbær

Þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð í tvíbýli við Hafnargötu 73. Núverandi skipulag eignarinnar samanstendur af tveimur svefnherbergjum, stofu, eldhúsi, baðherbergi, þvottahúsi og forstofu/gangi. Eignin hefur sérinngang og hefur verið endurnýjuð að hluta á undanförnum árum, meðal annars rafkerfi, lagnir, gluggar, útidyrahurð og innri frágangur. Á lóðinni stendur jafnframt um 14 m² einangraður geymsluskúr sem fylgir við sölu.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun. Sýnum samdægurs!


Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 75,4 m². Fastanúmer eignarinnar er F2088135. Eigninni fylgir allt það sem henni tilheyrir, þar með talin lóðar- og sameignarréttindi.

Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa/gangur
liggur miðsvæðis í eigninni og tengir saman helstu rými hennar.
Eldhús er með blárri og dökkri innréttingu, vinnuborði, bakaraofni, helluborði og flísum milli efri og neðri skápa. Eldhúsið hefur verið stækkað inn í rými sem er skráð sem geymsla.
Stofa er rúmgóð með stórum glugga.
Hjónaherbergi er með rúmgóðum fataskápum og gluggum á tvo vegu.
Svefnherbergi er rúmgott með glugga.
Baðherbergi er með flísalögðu gólfi, sturtuklefa, upphengdu salerni, vaski, speglaskáp og handklæðaofni. Gólfhiti er á baðherbergi.
Þvottahús er með hillum og góðu vinnuborði.
Parket er á meginrýmum eignarinnar en flísar í eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi.

Á lóðinni stendur frístandandi, um 14 m² einangraður geymsluskúr sem byggður var árið 2024. Skúrinn er ekki hluti af skráðum 75,4 m² eignarinnar.

Framkvæmdir að sögn seljenda:
2024: Um 14 m² einangraður geymsluskúr var byggður á lóðinni.
2023: Rafkerfi var endurnýjað, þar á meðal rafmagnstafla, og nýtt dregið í lagnir ásamt því að tenglum var fjölgað. Vatnslagnir, frárennslislagnir, ofnar og lagngrind voru endurnýjuð og gólfhiti lagður á baðherbergi. Gluggar og útidyrahurð voru endurnýjuð. Einnig var endurnýjað gólfefni og innihurðir ásamt fataskápum í hjónaherbergi.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is


Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

Hafnargata 73

230 Reykjanesbær · Keflavík
TegundHæðStærð75,4 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
46.900.000 kr.622 þ./m²
Byggingarár1944InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2088135Fasteignamat39.250.000 kr.Brunabótamat40.800.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangReykjanesvegur 40, 260 ReykjanesbæSími780-2575

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 19 myndir

Upp ↑