fasteignasölur.is
Miðvangur 92
1 af 36

Um eignina

Glæsileg 162,9 fm 5 herbergja íbúð á jarðhæð með bílskúr við Miðvang 92 í Hafnarfirði.
Eignin skiptist þannig að íbúðin sjálf er 137,0 fm og bílskúrinn 25,9 fm, samtals 162,9 fm skv. HMS.

Nánari lýsing:
 Forstofa með skápum og fataherbergi innaf, flísar á gólfi. Flísalagt gestasalerni. Sjónvarpshol með parketi á gólfi. Eldhús með viðarinnréttingu, borðkrókur, ofn í vinnuhæð,khelluborð m/háf yfir, flísar á gólfi og á veggjum. Þvottahús er innaf eldhúsinu. Rúmgóð og björt stofa og borðstofa. Gangur, útgengt á skjólgóðan sólpall. Fjögur svefnherbergi eru á ganginum, þ.m.t. hjóna, skápar í öllum. Baðherbergi með innréttingu, baðkar m/sturtu yfir, flísar á gólfi og veggjum. 
Bílskúrinn er með hita, rafmagni, vatni og hurðaopnara. 
Lóðin er snyrtilega frágengin, steypt plan, gras á lóð og sólpallur.

Framkvæmdir undanfarin ár skv. eigendum:
- Skipt var um gler og gluggar yfirfarnir í stofu og herbergisgangi árið 2011. 
- Skipt var um gler í gluggum í barnaherbergjum árið 2024.
- Nýtt harðparket árið 2020.
- Húsið sprunguviðgert, múrað og málað árið að utan árið 2024.
- Skipt um þakjárn og pappa, settar nýjar þakrennur og strompur fjarlægður árið 2022.

Frábær staðsetning þar sem stutt er í helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.

Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 772-7376 / aron@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Miðvangur 92

220 Hafnarfjörður
TegundHæðStærð162,9 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.2
109.900.000 kr.675 þ./m²
Byggingarár1969InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2078092Fasteignamat103.000.000 kr.Brunabótamat81.470.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 17, 220 HafnarfjörðurSími520-2600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑