fasteignasölur.is
Mýrargata 15
1 af 22

Um eignina

LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteignir.is kynna:
Mýrargata 15, Neskaupstað.
Skemmtilegt raðhús á 3 pöllum. 
Komið er inn í góða flísalagða forstofu með fataskáp. Inn úr forstofunni er gangur og við hlið hans er nýlega endurnýjuð gestasnyrting.
Gengið er upp 3 þrep upp á miðpallinn en þar er borðstofa í opnu rými sem tengist stofunni, gott flísalagt eldhús með góðri innréttingu með plássi fyrir uppþvottavél og þvottahús með dyrum út í bakgarðinn.
Í bakgarðinum er grasflöt, rabbarbari og þvottasnúrur.
Úr borðstofunni er gengið niður 3 þrep í stofuna. Parket er á gólfum í stofu, borðstofu og á tröppum.
Ágætur parketlagður stigi er upp á efri hæðina. Þar eru 2 svefnherbergi, minna herbergið er með dyrum út á svalir. Inn úr stærra herberginu er lítið en notadrjúgt fataherbergi.
Einnig er baðherbergi með baðkari á hæðinni og lítil geymsla við herbergjaganginn.
Lóðin framan við húsið er hellulögð og með afgirtu skjólsælu horni.
Fallegt og mikið útsýni er frá húsinu.
Húsið er vel staðsett. Verkmenntaskóli er handan götunnar og grunnskóli og leikskóli þar fyrir neðan. Stutt er á stóra vinnustaði eins og sjúkrahúsið og fleira.

Mýrargata 15

740 Neskaupstaður
TegundRað-/parhúsStærð97,8 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.2
39.900.000 kr.408 þ./m²
Byggingarár1960InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2169392Fasteignamat31.600.000 kr.Brunabótamat48.200.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangÚtkaupstaðarbraut 1, 735Sími893-1319

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 22 myndir

Upp ↑