fasteignasölur.is
Skarðshlíð 24 íbúð 402
1 af 22

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is

Skarðshlíð 24-402 - Björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð með góðum svölum og fallegu útsýni - stærð 82,2 m²

Eignin skiptist í forstofu/hol, stofu og borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og svalir.

Nánari lýsing:
Forstofan/holið
er með parketi á gólfi og tengir saman rými íbúðarinnar.
Stofan er björt og rúmgóð með parketi á gólfi og góðu rými fyrir bæði setustofu og borðstofu. Úr stofu er gengið út á steyptar suður svalir með fallegu útsýni.
Eldhúsið er rúmgott með góðri skápa- og vinnuaðstöðu. Dúkur er á gólfinu, borðkrókur og opnanlegur gluggi.
Svefnherbergin eru þrjú. Hjónaherbergi er rúmgott með dúk á gólfi og stórum innbyggðum fataskápum. Hin tvö herbergin eru björt og nýtast vel sem svefnherbergi, barnaherbergi eða skrifstofa, dúkur er á gólfum og fataskápur er í öðru þeirra.
Baðherbergið er með baðkari með sturtutækjum, wc og innréttingu með handlaug. Þvottaaðstaða er innan baðherbergis með góðri skápaaðstöðu.

Annað:
- Gott útsýni er úr eigninni
- Góð staðsettning þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, íþróttasvæði Þórs og verslun Bónus

Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skarðshlíð 24 íbúð 402

603 Akureyri (utan Glerár)
TegundFjölbýlishúsStærð82,2 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
47.500.000 kr.578 þ./m²
Byggingarár1972InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2150325Fasteignamat41.400.000 kr.Brunabótamat46.050.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 22 myndir

Upp ↑