Opið hús 11. okt. kl. 15:00–15:30
1 af 36Um eignina
Nýtt á skrá! Háaleitisbraut 22 í Reykjavík - Rúmgóð 4ra - 5 herb. fjölskylduíbúð með fallegu útsýni og bílskúr.
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir rúmgóða 136,8 fermetra 4ra - 5 herbergja fjölskylduíbúð í vel viðhöldnu fjölbýlishúsi við Háaleitisbraut 22 í Reykjavík. Íbúðin er í dag með þremur svefnherbergjum en einfalt er að bæta við fjórða svefnherberginu eins og upphaflega teikningar gera ráð fyrir (sjá teikningu í myndum). Þvottaherbergi/búr er inn af eldhúsi og góður sérstæður 19,5 fermetra bílskúr í bílskúrslengju fyrir framan húsið.
Húsið lítur vel út að utan, hvort sem er múr, málning eða þak. Gluggar voru endurnýjaðir á austurhlið hússins fyrir u.þ.b. 5 árum síðan. Þá hefur rafmagnstafla í sameign verið endurnýjuð og verið er að endurnýja hitastilla fyrir allar íbúðir í húsinu. Nýlega var allt bílaplanið við húsið endurnýjað (malbikað upp á nýtt) og samhliða því voru drenlagnir austan megin (fyrir framan hús) við húsið endurnýjaðar. Auk þess voru gólfefni (harðparket) og innihurðir íbúðar endurnýjaðar fyrir u.þ.b. 6 árum síðan og eldhús sprautulakkað á þessu ári.
Nánari lýsing:
Forstofa/hol: Harðparket á gólfi og fatarými (lokað af með rennihurð).
Stofa: Er stór með gluggum til vesturs. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Skv. teikningu var hluti af stofu fjórða svefnherbergi íbúðar og einfalt að breyta því til baka. Útgengi á svalir.
Svalir: Snúa til vesturs inn í bakgarð hússins. Afar fallegt og víðsýnt útsýni frá svölum.
Eldhús: Með flísum á gólfi og sprautulakkaðri eldhúsinnréttingu. Nýlegur Samsung bakaraofn, tengi fyrir uppþvottavél og keramik helluborð. Borðkrókur og gluggi til austurs.
Þvottaherbergi: Er staðsett inn af eldhúsi. Flísar á gólfi, tenglar fyrir þvottavél/þurrkara, þvottasnúrur og gluggi til austurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum. Innrétting við vask og salerni.
Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi, góðum skápum (endurnýjaðir) og gluggum til vesturs. Útgengi á svalir.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til austurs.
Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfi og glugga til austurs.
Geymsla: Er staðsett í kjallara með hillum.
Hjóla- og vagnageymsla: Málað gólf og útgengi á framlóð hússins.
Sameiginlegt þvottaherbergi: Er staðsett í kjallara. Rúmgott með máluðu gólfi. Sér tenglar fyrir íbúðir, þvottasnúrur og gluggi til vesturs.
Bílskúr: Er 19,5 fermetrar að stærð. Upphitaður og með rafhleðslustöð og rafmagnsopnun á bílskúrshurð.
Nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson löggiltur fasteignasali, í síma 849-0672, tölvupóstur heimir@fastlind.is

Háaleitisbraut 22
108 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð136,8 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.1
84.700.000 kr.619 þ./m²
Byggingarár1963InngangurSameiginlegurBílskúrJáFasteignanúmerF2014015Fasteignamat84.700.000 kr.Brunabótamat68.040.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 36 myndir
Upp ↑