Um eignina
Miklaborg kynnir:
Falleg og nýlega endurnýjuð 2ja herbergja 75,6 fm íbúð á efstu hæð (2.hæð) með svalir til vesturs og fallegu útsýni. Húsið var endurnýjað að nánast öllu leiti árið 2020.
NÁNARI LÝSING: Komið inn í anddyri með skápum. Á vinstri hönd er baðherbergi með sturtu, fallegri innréttingu, glugga og tengi fyrir þvottavél. Úr anddyri er gengið upp nokkur þrep inn í alrými eignarinnar. Eldhús er með fallegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og stórum glugga með fallegu útsýni til norðurs. Eldhús er opið inn í rúmgóða og bjarta stofu. Úr stofu er gengið út á svalir í vestur. Hjónaherbergi er sérlega rúmgott með góðum skápum og stórum gluggum. Stutt er í alla helstu þjónustu.
GÓLEFNI: Flísar eru á anddyri, stiga og baðherbergi en parket á öðrum gólfum.
Mikið endurnýjuð og vel staðsett íbúð með fallegu útsýni.
Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is
Verðsaga
3 þinglýstir kaupsamningarHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Kirkjubraut 1
Staðsetning
Allar 31 myndir
Upp ↑





























