fasteignasölur.is
Víðidalur 3
1 af 44

Um eignina

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Víðidalur 3, 260 Reykjanesbær, 232.6 fm. Reglulega smekklegt og vel hannað fimm herbergja einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr, staðsett í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í Njarðvík. 

Eignin er björt, rúmgóð með gott  skipulag, með fallegu flæði milli rýma og skjólgóðum suðurpalli með heitum potti. 
Eignin hefur að geyma forstofu, 5 svefnherbergi, eldhús, stofu og borðstofu í opnu rými, sjónvarpshol, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. 
Gólfsíðir gluggar eru í flestum rýmum sem hleypa skemmtilegri birtu inn.


Upplýsingar um eignina veitir:
Halla Vilbergs löggiltur fasteignasali, í síma 772-7930, tölvupóstur halla@allt.is
Elín Frímannsdóttir löggiltur fasteignasali,, í sím
a 867-4885, tölvupóstur elín@allt.is


Helstu kostir: 
*** Einbýli á einni hæð 
*** Fimm Svefnherbergi
*** Skjólgóður suðurpallur með heitum potti og úti eldhúsi.
*** Frábær staðsetning í rólegu og fjölskylduvænu hverfi 
*** Stutt í skóla, leikskóla, verslanir, sund og líkamsrækt 
*** Stílhreint og opið eldhús með hvítri innréttingu með ljósum viðar efri skápum og eyju 
*** Rúmgóð hjónasvíta með fataherbergi og sér baðherbergi með baðkari.



 
Nánari lýsing eignar: 
Anddyri: Flísalagt með góðum fataskápum. Innangengt í bílskúr.
Stofa og borðstofa: Björt og rúmgóð stofa með flísum á gólfi. Útgengt er á verönd með afgirtum timburpalli, heitum potti og úti eldhúsi.
Eldhús: Stílhreint og opið eldhús með innréttingu, neðri skápar háglans hvítir, efri ljós eik og eyju sem eykur vinnu- og geymslupláss.  Flísar á gólfi og opið rými við stofu sem skapar skemmtilega heild. 
Hjónaherbergi:  Er rúmgott og bjart með sér fataherbergi og baðherbergi með baðkari. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi: Eru 4, reglulega rúmgóð með stórum gólfsíðum gluggum. Flísar eru á gólfum.
Baðherbergi: Smekklegt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Walk in sturta, upphengt salerni og snyrtileg innrétting.  
Þvottahús: Þvottahús flísalagt, með úgengt út á pall.

Á lóð er einnig 15 fm geymsluskúr með rafmagni.
 
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · ALLT fasteignasala
138.900.000 kr.597 þ./m²
+243,0% á 13 árum
17. september 2013Fyrsta sala
40.500.000 kr.174 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Víðidalur 3

260 Njarðvík
TegundEinbýlishúsStærð232,6 m²Herbergi5Svefnherb.5Baðherb.2
138.900.000 kr.597 þ./m²
Byggingarár2008InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2308237Fasteignamat123.600.000 kr.Brunabótamat125.700.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnargata 62, 230 ReykjanesbærSími560-5500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 44 myndir

Upp ↑