1 af 33
Um eignina
Lögeign kynnir eignina Garðarsbraut 33, 640 Húsavík.
Um er að ræða einbýlishús sem er samtals 153,4 m2 að stærð. Húsið er á tveimur hæðum og er byggt úr steypu árið 1936. Húsið hefur verið útbúið með þeim hætti að í dag er um að ræða tvær aðskildar íbúðir sem deila þvottahúsi. Hvor íbúð er með sérinngang. Mögulegt er því að leigja aðra íbúðina út. Auðvelt er að breyta eigninni aftur á þann veg þannig að um sé að ræða eitt sameiginlegt hús þar sem gengið er á milli hæða. Á undanförnum árum hefur verið endurnýjað talsvert að innan sem og að utan og má þar m.a. nefna þak endurnýjað, sprunguviðgerðir að utan og málað í framhaldinu, baðherbergi á efri hæð ásamt eldhúsi.
Efri hæðin samanstendur af forstofu, baðherbergi, eldhúsi, stofu, geymslu og tveimur svefnherbergjum. Annað svefnherbergi er svo inn af þvottahúsi á jarðhæð sem tilheyrir íbúðinni.
Gengið er upp steyptar tröppur áður en komið er inn í flísalagða forstofu. Inn af forstofu tekur við parketlagður gangur sem tengir saman öll önnur rými efrihæðar. Stofan er björt og nýtist bæði sem sjónvarpsstofa og borðstofa. Eldhúsið er með hvítum efri og neðri skápum og viðarlitaðri bekkplötu. Á hæðinni eru tvö svefnherbergi, eitt sem er staðsett inn af eldhúsinu sem er með dúk á gólfi og fataskáp og svo er annað svefnherbergi staðsett á ganginum, niðurgengt er niður á jarðhæð eignarinnar af ganginum þar sem er þvottahús með innréttingu fyrir bæði þvottavél og þurrkara, ásamt því að útgengt er út í garð úr þvottahúsinu. inn af þvottahúsinu er eitt rúmgott svefnherbergi. Baðherbergið er með flísum á gólfi og flísum á veggjum í votrými, frístandandi wc og svartur vaskaskápur og sturtubaðkar.
Neðri hæðin samanstendur af Forstofu, baðherbergi, einu svefnherbergi, eldhúsi og stofu.
Gengið er inn í eignina á norðurhlið hússins. Forstofa er flísalögð og með fatahengi. Baðherbergi á hæðinni er lítið og er það með sturtu, vask og salerni. Elhús er um miðja hæðina og er opið þaðan inn í stofu. Eldhús er með dökkri innréttingu. Svefnherbergi er við eldhús og er það rúmgott. Stofann er svo í enda íbúðar og er hún mjög rúmgóð miðað við stærð íbúðar og gert ráð fyrir bæði borðstofuborði og sjónvarpsholi í stofunni.
Stór gróinn lóð er við húsið og er þar búið að setja geymsluskúr sem er tæplega 15 m2 að stærð. Steypt bílastæði er báðum megin við húsið.
Endurbætur:
Þakjárn var endurnýjað árið 2021
Farið í sprunguviðgerðið á stiganum að utan árið 2024.
Íbúð á jarðhæð fékk upplyftingu árið 2025 þar sem hún var máluð, ný ljós, gólfefni endurnýjuð ásamt bekkplötu í eldhúsi.
Baðherbergi á efrihæð endurnýjað árið 2025.
Þvottahús endurnýjað árið 2025.
Eldhús á efrihæð endurnýjað árið 2025.
Gert við sprungur í múr að utan og húsið málað í framhaldinu árið 2025.
Annað:
Glerið í húsinu er farið að láta á sjá og fer því að koma tími á endurnýjun.
Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is og Hinrik Marel Jónasson Lund lgf., í síma 835-0070 eða netfanginu hinrik@logeign.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á

Allar 33 myndir
Upp ↑