fasteignasölur.is
Valshlíð 303 - Hlutdeildarkaup
1 af 3

Um eignina

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Valshlíð 1 – íbúð 303, 102 Reykjavík.
Verð miðast við 75% kaup
Útborgun frá 9.442.500 kr.*

Glæsileg og rúmgóð 4ra herbergja íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi við Valshlíð 1 á Hlíðarenda. Íbúðin býður upp á þrjú svefnherbergi, tvennar svalir, opið alrými og sérþvottaherbergi. Úr stofu er útgengt á vestursvalir með óhindruðu útsýni og úr hjónaherbergi á austursvalir. Vandaðar innréttingar, gott skápapláss og aðskilin þvottaaðstaða gera íbúðina að þægilegu fjölskylduheimili.

Birt stærð er 120,9 fm,

Helstu atriði
  • Íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi.
  • Þrjú rúmgóð svefnherbergi með fataskápum.
  • Tvennar svalir til austurs og vesturs.
  • Sérþvottaherbergi og 8,9 fm geymsla í kjallara.
Hlutdeildarkaup 
75% verð íbúðar er: 94.425.000 kr.

Fullt verð á íbúðinni er: 125.900.000 kr.


Nánari lýsing
Komið er inn í anddyri með fataskápum og þaðan liggur gangur að helstu rýmum íbúðarinnar. Stofa, borðstofa og eldhús mynda rúmgott alrými með útgengi á vestursvalir. Eldhúsið er með eyju, grábrúnum innréttingum með mattri áferð og svörtum quartz-steini á borðum og milli skápa. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél eru í innréttingu.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með fataskápum. Hjónaherbergið er rúmgott og hefur sérútgengi á austursvalir. Baðherbergið er flísalagt með sturtu með glervegg, upphengdu salerni, handklæðaofni og speglaskáp. Sérþvottaherbergi er með innréttingu, vaski og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Innréttingarþema íbúðarinnar er Mói 2.
Íbúðin er búin sérloftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Í kjallara er sérgeymsla ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Sérmerkt bílastæði í sérreknum bílakjallara er í boði samkvæmt langtímaleigufyrirkomulagi, en ekki sem eignarstæði.


Nánari upplýsingar veita:
Ómar Hjaltason astmf. í S:778-9090 eða omar@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is




www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Valshlíð 303 - Hlutdeildarkaup

102 Reykjavík · Vatnsmýri
TegundFjölbýlishúsStærð120,9 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
94.425.000 kr.781 þ./m²
Byggingarár2025InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2532641Fasteignamat47.900.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangEngjateigur 3, 105 RekjavíkSímiPálsson

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 3 myndir

Upp ↑