fasteignasölur.is
Staðarborg 26
1 af 28

Um eignina

eignasala.is kynnir eignina Staðarborg 26, 190 Vogar, nánar tiltekið eign merkt 01-03, fastanúmer 252-7926 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Staðarborg 26 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 252-7926, birt stærð 129.2 f tölvupóstur julli@eignasala.is.
EIGNASALA.IS KYNNIR – STAÐARBORG 26C, 190 VOGAR
Fallegt og sérlega vel skipulagt 129,2 m² FIMM HERBERGJA RAÐHÚS Á TVEIMUR HÆÐUM í Grænubyggð í Vogum. Eignin er með FJÓRUM SVEFNHERBERGJUM, tveimur baðherbergjum, sérþvottahúsi, björtu og rúmgóðu alrými, sérgarði, svölum og GLÆSILEGU SJÁVARÚTSÝNI.
BÓKIÐ SKOÐUN – VIÐ FINNUM TÍMA SEM HENTAR ÞÉR!
Eignin er byggð árið 2023 og skipulagið hentar fjölskyldum einstaklega vel. Eitt svefnherbergi er á jarðhæð og þrjú á efri hæð. Stórir gluggar og aukin lofthæð yfir hluta alrýmisins skapa mikla birtu og skemmtilega rýmistilfinningu.
NÁNARI LÝSING
Jarðhæð:
Forstofa: Rúmgóð forstofa. Inn af forstofu er gott svefnherbergi sem getur einnig nýst sem gesta- eða vinnuherbergi.
Svefnherbergi I: Gott herbergi á jarðhæð.
Gestasnyrting: Flísalögð í hólf og gólf með hvítri innréttingu, upphengdu salerni og handklæðaofni.
Eldhús: Falleg og vönduð innrétting með góðu skápa- og vinnuplássi. Kvarssteinn er á borðum, undirfelldur vaskur og innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja eigninni. Eldhústæki eru frá Electrolux.
Stofa og borðstofa: Bjart og rúmgott opið alrými með eldhúsi. Aukin lofthæð er yfir hluta rýmisins og stórir gluggar á báðum hæðum hleypa mikilli birtu inn. Úr stofu er gengið út í sérgarð.
Milli hæða liggur glæsilegur stigi úr aski sem setur fallegan svip á alrýmið.
Efri hæð:
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með útgengi á vestursvalir þar sem nýtur glæsilegs og óhefts sjávarútsýnis.
Svefnherbergi II og III: Tvö góð svefnherbergi til viðbótar.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með sturtu og sturtugleri, upphengdu salerni, hvítri innréttingu og handklæðaofni.
Þvottahús: Sér þvottahús á efri hæð, flísalagt í hólf og gólf.
Garður og útisvæði: Úr stofu er gengið út í sérgarð. Fallega hannaður skjólveggur skilur að eignir og tengi eru fyrir heitan og kaldan pott.
Útigeymsla: Sér útigeymsla fylgir eigninni framan við húsið og er hún utan birtra fermetra.
HELSTU KOSTIR
• 129,2 m² fimm herbergja raðhús • Byggt 2023 • Fjögur svefnherbergi • Svefnherbergi á jarðhæð • Tvö baðherbergi • Sérþvottahús • Bjart og rúmgott alrými • Aukin lofthæð • Kvarssteinn á eldhúsborðum • Innbyggður ísskápur og uppþvottavél • Glæsilegur stigi úr aski • Vestursvalir út af hjónaherbergi • Óheft sjávarútsýni • Sérgarður • Lagnir fyrir heitan og kaldan pott • Sér útigeymsla
Virkilega falleg og vel skipulögð fjölskyldueign þar sem fjögur svefnherbergi, bjart alrými, sérgarður og óheft sjávarútsýni af efri hæð eru meðal helstu kosta.
BÓKIÐ SKOÐUN – VIÐ FINNUM TÍMA 
Hafðu samband við einhvern okkar og bókaðu skoðun:
Júlli – 899 0555,  Jói – 864 9677,  Bjarni Fannar – 773 0397, Reynir – 777 0915 , Skúli – 898 7209
EIGNASALA.IS – Hafnargata 90a, Keflavík
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana. 
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 43.400 með vsk.
 

Staðarborg 26

190 Vogar
TegundRað-/parhúsStærð129,2 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.2
85.300.000 kr.660 þ./m²
Byggingarár2023FasteignanúmerF2527926Fasteignamat73.700.000 kr.Brunabótamat67.250.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnargata 90, 230Sími420-6070

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑