fasteignasölur.is
Dvergaborgir 5
Nýtt
1 af 24

Um eignina

Nýtt á sölu :

106,7 fm íbúð á þriðju og efstu hæð við Dvergaborgir 5 í Grafarholti. Eignin er á tveimur hæðum, með 3 svefnherbergjum og sérinngangi.

Íbúðin er vel staðsett í fjölskylduvænu hverfi þar sem skóli og leikskóli eru í göngufæri.
 Afnotaréttur á sérmerktu bílastæði fylgir eigninni.
 Mjög gott skipulag og eign sem býður upp á mikla möguleika.


Nánari upplýsingar veitir Sæþór Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 855-5550 eða saethor@miklaborg.is

Neðri hæð

Komið er inn í forstofu með fataskáp og flísum á gólfi.  

Á baðherbergi er flísalagt gólf, upphengt salerni, handklæðaofn, gluggi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 

Herbergi á neðri hæð er með dúk á gólfi og fataskáp. 

Eldhús og stofa eru í opnu rými, dúkur er á gólfi og góð lofthæð yfir hluta af stofu. Eldhúsinnréttingin er með efri og neðri skápum. Fallegt útsýni er frá eldhúsi, úr stofu er útgengt út á sólríkar svalir.

Efri hæð 

Tvö rúmgóð svefnherbergi eru á hæðinni ásamt rúmgóðri geymslu sem hægt er að nýta sem vinnuherbergi.
Lítið salerni er á hæðinni með flísum á gólfi og lítilli innréttingu.
Geymsla er í sameign.

Staðsetning og nærumhverfi: Bæði skóli og leikskóli eru örstutt frá.
Hverfisskólinn er Vættaskóli, næsti leikskóli er Hulduheimar. 

Spöngin býður upp á margvíslega þjónustu og er í göngufæri frá eigninni. 

Dvergaborgir 5

112 Reykjavík · Grafarvogur
TegundFjölbýlishúsStærð106,7 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.2
77.500.000 kr.726 þ./m²
Byggingarár1996InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2225787Fasteignamat77.050.000 kr.Brunabótamat54.600.000 kr.
Skráð hjá
Sæþór ÓlafssonLöggiltur fasteignasali855-5550 · saethor@miklaborg.is
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑