fasteignasölur.is
Hestur lóð 49
1 af 35

Um eignina

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar kynnir eignina Hestur lóð 49, 805 Selfoss Grímsnes- og Grafningshrepp, Birt stærð eignarinnar er 102.2 m2 sem skiptist í 87,3 m2 sumarhús 14,9 m2 gestahús. Eignin stendur á u.þ.b. 1 ha. eignarlandi. 

Að utan er eignin klædd með málaðri láréttri kúptri timburklæðningu og svart bárujárn á þaki. Góður pallur á þrjá vegu umhverfis sumarhúsið með tröppum niður á grasflöt sem er 6-800 fermetrar að stærð.  Einnig tröppur að heitum potti með sírennandi hitaveituvatni, útisturtu og véla- og verkfærageymslu sem er á austurhlið hússins. Eigninni fylgir stór lóð um 1 hektari að stærð með fjölbreyttum trjágróðri og berja landi í brekkunni ofan við húsið. Að innan er hvítmáluð panilklæðning á veggjum og í lofti. Í eigninni er nýlegt vel útbúið eldhús með hvítri innréttingu, stofa og borðstofa í sameiginlegu rými með uppteknu lofti. Tvö svefnherbergi eru í eigninni og yfir ca. 1/4 af húsinu er svefnloft og geymslurými undir súð, með glugga á gaflinum sem veitir birtu inn í rýmið. Á neðri hæð eru tvö svefnherbergi og ljós viðarlitað parket á gólfi.

Eigninni fylgir einnig um það bil 15m2 gestahús í garðinum með salernisaðstöðu og nýtist sem aukagisting. Búið er að útbúa þvottaaðstöðu í geymslu sem er gengið er inn í af palli með þvottavél, þurrkara og skolvaski. Þá er einnig lítil geymsla hjá forstofu. 

Núverandi eigendur hafa endurnýjað margt í eigninni frá árinu 2016 t.a.m. tekið inn hitaveitu í eignina, skipt um gólfefni, allar lagnir endurnýjaðar, hiti settur í gólf, endurnýjað eldhús innréttingu og fjarlægður arinn sem stóð áður á miðju stofugólfi.

Flott eign fyrir þá sem gera kröfur um gæði, næði og fegurð í nágrenni við eitt besta orlofsbyggðasvæði landsins.

Nánari upplýsingar veitir Kristófer Ari Te Maiharoa Lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 6956134, tölvupóstur kristo@olafur.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 55.000 + vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.

Nánari upplýsingar veita Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfræðingur og löggilltur fasteignasali kristo@olafur.is s: 416-2223, gsm: 695 6134 eða Ólafur Björnsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali oli@olafur.is - s: 416 2220 - gsm: 894 3209 

Hestur lóð 49

805 Selfoss (dreifbýli)
TegundSumarhúsStærð102,2 m²Herbergi4Svefnherb.2Baðherb.2
79.000.000 kr.773 þ./m²
Byggingarár1991InngangurTveir inngangarFasteignanúmerF2207410Fasteignamat66.900.000 kr.Brunabótamat65.290.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangEyrarvegi 15b, 800 SelfossSími416-2220

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 35 myndir

Upp ↑