fasteignasölur.is
Miðháls 5
1 af 42

Um eignina

Nes fasteignasala kynnir í einkasölu:

Miðháls 5, 311 Borgarnes.

 
Um er að ræða sumarhús í skipulagðri frístundabyggð í landi Laufáss. Húsið stendur á eignarlóð, 4,800fm að flatarmáli. Lóðin er kjarri vaxin og með náttúrlegum lynggróðri og er lóðin vel hirt. Þá hafa eigendur gróðursett sígræn barrtré og beinsprottið birki.  Bílastæði eru malarborin, vel frágengin.  Ljós eru með innkeyrslu og stíg sem liggur upp að húsinu.
 
Nánari lýsing:

Húsið er byggt 2006, 72,5 fm að stærð samkvæmt skráningu HMS. Húsið er úr massívu timbri, innflutt frá Litháen, með standandi Síberíu lerki á steyptum grunni. Á þaki er litað stallað stál. Við húsið er stór sólpallur úr lerki með skjólveggjum úr setrusviði. Á pallinum er rafmagns pottur og garðhúsgögn. Húsið er hitað með gólfhita og kynnt með rafmagnstúpu. Öll gólfefni eru fljótandi eikarparket utan þess að flísar eru á forstofu og baðherbergi.
 
Gengið er inn í flísalagða forstofu og þaðan inn á baðherbergi sem er flísalagt sömu flísum og forstofan, íslensk framleiðsla frá Alda Design.  Baðherbergið er með vegghengt salerni og með nýjan frístandandi sturtuklefa. Úr forstofu er svo gengið inní tvö rúmgóð svefnherbergi sem bæði eru með tvíbreiðum rúmum.  Inn af forstofunni mynda stofa og eldhús gott alrými.  Eldhúsinnrétting er frá Voke, nýlega sprautulökkuð, nýr SMEG ísskapur fylgir.  Borðstofuborð er stækkanlegt og tekur 16 manns.  Í stofunni er kamína sem gerir vetrarkvöldin notaleg. Gengið er úr stofu út á sólpallinn sem snýr mót suð-vestri.
Úr forstofu er einnig gengið upp beyki stiga upp á loft sem er aðal svefnhergið. Þar er nýlegt, Jenssen rúm. 
 
Flest húsgögn og rúm fylgja.

Sumarhúsið er vel staðsett í um klukkustundar fjarlægð frá Reykjavík. 

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.

Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Miðháls 5

311 Borgarnes (dreifbýli)
TegundSumarhúsStærð72,5 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
55.000.000 kr.759 þ./m²
Byggingarár2006InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2282245Fasteignamat35.850.000 kr.Brunabótamat53.100.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgarbraut 57, 310Sími497-0040

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 42 myndir

Upp ↑