fasteignasölur.is
Skaftahlíð 4
Opið hús 11. okt. kl. 16:00–16:30
1 af 25

Um eignina

Nýtt í sölu! Skaftahlíð 4 Reykjavík - Afar falleg og mikið endurnýjuð 2ja herb. íbúð í kjallara á frábærum og eftirsóttum stað í Hlíðunum.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir virkilega vel skipulagða og mikið endurnýjaða 2ja herbergja íbúð í kjallara í fallegu og vel viðhöldnu fjölbýlishúsi við Skaftahlíð 4 í Reykjavík. Íbúðin er alls 60,8 fermetrar að stærð og skiptist í eldhús, stofu, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.

Íbúð og hús hefur verið mikið endurnýjað á undanförnum árum. Árið 2022 var eldhús, parket (undirlag), skápar í forstofu/svefnherbergi, sturtuklefi og rafmagn innan íbúðar endurnýjað. Innihurðir á svefnherbergi og baðherbergi voru endurnýjaðar árið 2025. Þá hafði baðherbergi sömuleiðis verið endurnýjað fyrir nokkrum árum síðan. Húsið var múrviðgert og málað á árunum 2022 - 2023 ásamt því að skipt var um glugga. Auk þess var sauna í sameign endurnýjuð árið 2024. 

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað í Hlíðunum í næsta nágrenni við miðborgina þaðan sem stutt er í alla versluna og þjónustu, veitingastaði og aðra menningu/afþreyingu sem miðborgin hefur upp á að bjóða. Klambratún og sundlaug í næsta nágrenni. Stutt er í helstu stofnæðar frá hverfinu. 

Nánari lýsing:

Forstofa: Með harðparketi á gólfi og nýlegum skápum.
Eldhús: Var endurnýjað á afar smekklegan máta árið 2022. Harðparketi á gólfi og hvít eldhúsinnrétting með innb. kæliskápi með frysti, bakaraofni, helluborði og glugga til vesturs. Góður borðkrókur við eldhús.
Stofa: Er rúmgóð með harðparketi á gólfi og glugga til suðurs
Baðherbergi: Hefur verið endurnýjað á smekklegan máta. Flísar á gólfi og hluta veggja. Falleg innrétting við vask og handklæðaofn. Nýleg sturta og upphengt salerni. Gluggi til vesturs. Möguleiki að setja tengi fyrir þvottavél á baðherbergi.
Svefnherbergi: Með harðparketi á gólfi, nýlegum skápum og glugga til vesturs.
Geymsla: Er 4,5 fermetrar að stærð og staðsett á hæðinni (nálægt íbúð). 

Sauna/gufubað: Sameiginleg sauna er í sameign hússins sem er nýlega búið að endurnýja.
Tvö þvottaherbergi: Eru sameiginleg í kjallara hússins. Skráir tíma.
Hjóla- og vagnageymsla: Er stór og er sameiginleg í kjallara hússins. 

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali og lögfræðingur í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Skaftahlíð 4

105 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð60,8 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
57.900.000 kr.952 þ./m²
Byggingarár1958InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2013511Fasteignamat50.300.000 kr.Brunabótamat32.950.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑