fasteignasölur.is
Vefarastræti 38
1 af 58

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasalaog Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:
Í einkasölu:
 Eignina Vefarastræti 38, 270 Mosfellsbær, nánar tiltekið eign merkt 03-09, fastanúmer 236-0057 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
EINSTAKT TÆKIFÆRI AÐ EIGNAST STÓRA GULLFALLEGA ÚTSÝNISÍBÚÐ MEÐ FIMM RÚMGÓÐUM SVEFNHERBERGJUM, TVEIMUR BAÐHERBERGJUM, ÞVOTTHÚSI OG STÓRU ALRÝMI.

Íbúðin er á 3ju hæð,efstu hæð með stórum suðursvölum og er eina íbúðin á hæðinni.
Stæði í bílageymslu merkt B10
Sérgeymsla á jarðhæð. Stór hjóla-/vagnageymsla í sameign á jarðhæð.
Samkv. FMR skiptist eignin í íbúð 161,8 fm og 10fm geymslu, samtals 171,8 fm.
Mikið og fallegt útsýni. Sunnan og austan við húsið er grænt útivistasvæði og skógur.
Grunn- og leikskóli í nokkra mínútna göngufæri.

Nánari lýsing: (sjá teikningu).
Inngangur/anddyri er stórt og bjart rými með mikilli lofthæð. Stórir fataskápar. Flísar á gólfi.
Hægra megin við anddyri er gestasalerni með walk-in sturtuklefa.
Inn af inngangi er herbergi með tveimur síðum gluggum.  skv. teikningu er þetta skráð vinnurými en búið er að loka því af svo nú er þar rúmgott herbergi með mikilli lofthæð og geymslu/svefnlofti. 
Stofa/borðstofa og eldhús eru í opnu rými. Stórir gluggar á tvo vegu og útgengi á stórar suðursvalir.
Eldhúsinnrétting með eikaráferð og góðu skápa- og skúffuplássi. Uppþvottavél. helluborð, bakaraofn og háfur.
Hjónaherbergi er með fataherbergi og útgengt út stórar svalir.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi eru á svefnherbergisgangi. Samtals eru 5 svefnherbergi í íbúðinni
Þvottahús með ljósgrárri innréttingu, gott skápa- og borðpláss með vaski. Flísar á gólfi.
Baðherbergi er með innréttingu með eikaráferð, upphengt salerni og baðkari. Flísar á gólfi.
Dyr í íbúðinni eru í yfirbreidd með góðu aðgengi fyrir hjólastóla.
Vandað harðparket er á öllum gólfum fyrir utan votrými.

Frábær fjölskyldueign á einstaklega fallegum stað í Mosfellsbænum.
Sjón sannarlega sögu ríkari.

Eignin Vefarastræti 38 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 236-0057, birt stærð 171.8 fm.

Nánari upplýsingar veitir Sverrir Sigurjónsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6624422, tölvupóstur ss@betristofan.is.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Vefarastræti 38

270 Mosfellsbær
TegundFjölbýlishúsStærð171,8 m²Herbergi6Svefnherb.5Baðherb.2
124.800.000 kr.726 þ./m²
Byggingarár2017InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2360057Fasteignamat113.200.000 kr.Brunabótamat131.920.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 58 myndir

Upp ↑