fasteignasölur.is
Gefjunarbrunnur 15
Nýtt
1 af 27

Um eignina

Miklaborg kynnir: Glæsileg og nýleg 135,1 fm efri sérhæð í tvíbýlishúsi við Gefjunarbrunn. Íbúðin er öll rúmgóð með stóru og rúmgóðu alrými með stofu, borðstofu, sjónvarpsstofu og eldhúsi. Þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Stórir og miklir gluggar og góð lofthæð. Bílastæði fyrir framan húsið og gestastæði í botnlanganum.

Stutt í skóla, leikskóla og íþróttasvæði Fram þar sem má finna meðal annars sundlaug.


Skipti möguleg á húsi eða sérbýli og jafnvel íbúð í Mosfellsbæ.

Nánari lýsing. Eignin er með sérinnagni og er á efri hæð. Komið inn í rúmgott hol með fataskápum. Opið alrými með eldhúsi, borðstofu, stofu og sjónvarpsstofu. Eldhúsið er glæsilegt með eyjuborði, steinn á borðum, vönduð raftæki þar á meðal tveir ofnar þar af annar comby ofn, spanhelluborð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél sem fylgja með. Rúmgóð borðstofa á milli stofu og eldhúss. Stofa og inn af henni er sjónvarpsstofa, útgengi út á suðursvalir frá stofu og gott útsýni er frá þessum hluta íbúðarinnar. Möguleiki að bæta við herbergi á kostnað sjónvarsstofu. Þrjú rúmgóð herbergi, hjónaherbergi er 16 fm með fastskápum, tvö barnaherbergi bæði með fataskápum. Mjög fallegt baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf. Sturtuaðstaða með innbyggðum blöndunartækjum, glerveggur lokar sturtunni, stór og mikil innrétting með stein á borði, handklæðaofn og stór spegill með baklýsingu. Þvottahús/geymsla með miklu skápaplássi, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, vinnuborð með vaski. Gólfefni íbúðarinnar er viðarparket á flestum gólfum nema á baðherbergi og forstofu en þar eru flísar. Allar Innihurðir eru 220 cm að hæð með innbyggðum læsingum. Vönduð blöndunartæki á baði og eldhúsi.

Þrjú bílastæði er á lóð hússins fyrir framan húsið. Húsið stendur í botnlangagötu og eru sameiginleg bílastæði fyrir botnlangann handan götunnar.

Upplýsingablað seljanda um ástand eignarinnar er hægt að nálgast hjá fasteignasölunni. Ekkert húsfélag er starfandi um eignina.


Hér er um að ræða afar vandaða sérhæð á rólegum stað í Úlfarsárdal þar sem stutt er í náttúruna, skóla, íþróttir, sund og bókasafn.


Nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is



Gefjunarbrunnur 15

113 Reykjavík · Grafarholt
TegundFjölbýlishúsStærð135,1 m²Herbergi5Svefnherb.3Baðherb.1
112.500.000 kr.833 þ./m²
Byggingarár2021FasteignanúmerF2511962Fasteignamat98.400.000 kr.Brunabótamat80.950.000 kr.
Skráð hjá
Svan Gunnar GuðlaugssonLöggiltur fasteignasali697-9300 · svan@miklaborg.is
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 27 myndir

Upp ↑