fasteignasölur.is
Álfatún 19
Opið hús 12. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 23

Um eignina

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Hlýleg og björt þriggja herbergja endaíbúð með sólpalli og bílskúr í fallegu fjórbýli við Álfatún í Kópavogi.
Góð og fjölskylduvæn staðsetning í botnlangagötu neðst við Fossvogsdalinn.

* Bílskúr er skráður 18,4 m2
* Sólpallur með skjólveggjum til suðurs
* Sérsturta og baðkar


Viðhald eignar síðastliðin ár tiltelur ma. :
2017 var Hús og þak málað að utan
2018 var endurnýjað parket, flísar í forstofu, hurðar, tenglar
2020 var baðinnrétting endurnýjuð, sett ný blöndunartæki og flísar epoxylakkaðar, sólpallur byggður, bakarofn og helluborð í eldhús endurnýjað.
2021 var endurnýjað teppi á stigagangi og sameign máluð
2022 var sett dren aftan við hús og leiktæki endurnýjuð

Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð samkv. Þjóðskrá Íslands er 105,8 m2. Óskráðir fermetrar eru sérgeymsla sem er er um 8 m2 og er því réttari heildarstærð eignarinnar í raun um 113,8 m2. 

Eignin skiptist í forstofu, stofu / borðstofu, eldhús, baðherbergi, 2 svefnherbergi, bílskúr og geymslu. 
Forstofa er flísalögð.
Stofa / borðstofa er björt og opin með gluggum í tvær áttir, gólfsíður gluggi á gafli hússins setur fallegan brag á rýmið. Útgengi út á nýlegan timburpall. Parket á gólfi.
Eldhús með U-laga eldhúsinnréttingu og borðkrók. Skipt um bakaraofn og helluborð 2020. Tengi fyrir uppþvottavél í innréttingu. Parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með innréttingu með handlaug, wc, baðkar og sér sturta.
Svefnherbergi 1 með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi.
Á jarðhæð er bílskúr og inn af bílskúr er rúmgóð geymsla.
Í sameign er þvottahús, þurrkherbergi þar sem hver íbúð hefur pláss fyrir sín tæki. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla.

Lóðin er með góðum leiktækjum fyrir börn. Miklum gróðri og fallegum trjám sem gerir umhverfið mjög hlýlegt og skemmtilegt.
Einstök staðsetning í næsta nágrenni við Fossvogsdalinn.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Pálsson fasteignasala
86.900.000 kr.764 þ./m²
+24,1% á 4 árum
18. ágúst 2022Þinglýstur kaupsamningur
70.000.000 kr.662 þ./m²
+59,1% á 4 árum
13. júní 2018Fyrsta sala
44.000.000 kr.416 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Álfatún 19

200 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð113,8 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
86.900.000 kr.764 þ./m²
Byggingarár1984InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2057882Fasteignamat80.000.000 kr.Brunabótamat63.600.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangEngjateigur 3, 105 RekjavíkSímiPálsson

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑