Um eignina
Við opnum snemma og lokum aldrei!!!
Víðilundur 10-106Mjög góð 4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð, svalir til vesturs
Um er að ræða mjög snyrtilega og bjarta fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð og er öll nýmáluð. Gengið er upp sex tröppur að palli og þaðan beint inn í íbúðina.
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með brúnum flísum á gólfi, fatahengi og hillu.
Hol: Hol er með parketi á gólfi og tengir saman rými íbúðarinnar.
Stofa: Er björt og skemmtileg, með parketi á gólfi og góðu rými fyrir setustofu og borðstofu.
Svefnherbergi: Svefnherbergi eru þrjú, öll með parketi á gólfi.
Eldhús: Eldhúsið var endurnýjað fyrir nokkrum árum og er með nýlegri hvítri innréttingu, gráum borðplötum, keramikhelluborði og innfelldum stálvaski. Ljósar plötur eru á milli efri og neðri skápa. Úr eldhúsinu er gengið inn í þvottahús sem er mjög snyrtilegt með dökkum flísum á gólfi, hvít innrétting með skúffum undir og hillu fyrir föt, auk aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Húsið og lóð: Húsið að utan hefur nýlega verið málað. Einnig hefur bílaplan verið tekið í gegn, þar sem grafið var frá húsinu, drenlagnir lagfærðar og nýtt malbik lagt.
Um er að ræða bjarta, vel skipulagða og mjög snyrtilega eign sem hefur verið vel við haldið og mikið endurnýjuð.
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 arnar@fastak.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Víðilundur 10
Staðsetning
Allar 19 myndir
Upp ↑

















