1 af 12
Um eignina
Eignamiðlun kynnir:
DIGRANES – SKÓLATRÖÐ 2, ÍBÚÐ 03-03, 200 KÓPAVOGI. Glæsileg og vönduð 92,1 fm 3ja herbergja útsýnisíbúð á 3. hæð (efstu) í nýju lyftuhúsi við Digranes. Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum, rúmgóðu 36 fm alrými, vönduðu eldhúsi, tvennum svölum og sérmerktu stæði í bílageymslu.SJÁ NÁNAR UM EIGNINA Í SKILALÝSINGU. SMELLTU HÉR FYRIR SÖLUYFIRLIT HEIMASÍÐA VERKEFNISINS
Helstu kostir eignarinnar eru rúmgott og bjart alrými, vandaðar innréttingar og AEG heimilistæki, 9,4 fm suðursvalir, 13,2 fm þaksvalir til norðurs inn í garð, sérgeymsla í sameign og sérmerkt bílastæði B079 í bílageymslu. Möguleiki er á kaupum á aukastæði.
BÓKAÐU SKOÐUN: Daði – 824 9096 | Hilmar – 824 9098 | Þórarinn – 899 1882
ATH. Íbúðin er afhent fullbúin án megingólfefna. Innimyndir þar sem gólfefni hafa verið sett inn með aðstoð gervigreindar eru eingöngu ætlaðar til að sýna mögulegt útlit eignarinnar.
Lýsing eignarinnar
Forstofa og gangur: Forstofa/anddyri er 4,1 fm með góðum fataskápum. Gangur er 8,6 fm og þaðan er meðal annars gengið út á 13,2 fm þaksvalir sem snúa inn í garðinn.
Baðherbergi: Baðherbergi er 5,7 fm, glæsilega innréttað og flísalagt. Vönduð innrétting með góðu skúffuplássi, speglaskápur með lýsingu og Silestone – Nolita steinborðplata. Rúmgóð „walk-in“ sturta með glerskilrúmi. Gólfhiti og handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi: 12,3 fm með góðum fataskápum.
Svefnherbergi II: 7,7 fm með fataskáp.
Eldhús, stofa og borðstofa: Bjart og rúmgott 36,0 fm alrými. Vandað eldhús með sérsmíðuðum innréttingum frá Selós, góðu skápa- og skúffuplássi og eyju. Dekton – Rem steinborðplötur. Innbyggður kæli-/frystiskápur og uppþvottavél ásamt spanhelluborði frá AEG fylgja eigninni. Eldhúsið er opið yfir í rúmgóða stofu og borðstofu. Úr alrýminu er gengið út á 9,4 fm suðursvalir.
Svalir: Eignin nýtur góðrar útiaðstöðu með tvennum svölum; 9,4 fm suðursvölum frá alrými og 13,2 fm þaksvölum til norðurs, inn í skjólgóðan inngarð.
Sameign og bílastæði: Sérgeymsla fylgir íbúðinni. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í húsinu og innangengt er í bílageymslu. Íbúðinni fylgir sérmerkt stæði B-79. Möguleiki er á kaupum á aukastæði.
Um Digranes: JÁVERK ehf. byggir á Digranesi glæsilegar og vel skipulagðar íbúðir þar sem lögð er áhersla á vandaðan frágang, góða hönnun og nútímalegar lausnir.
Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar án megingólfefna. Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðaðar frá Selós og vönduð AEG heimilistæki fylgja. Dekton – Rem steinborðplötur eru í eldhúsum og Silestone – Nolita á baðherbergjum. Baðherbergi og þvottahús, þar sem þau eru sér, eru flísalögð með Limestone MGM 60 × 60 cm flísum frá Ebson. Loftskiptikerfi: Í hverri íbúð er jafnvægisstillt loftræsikerfi með varmaendurvinnslu sem stuðlar að góðum loftgæðum. Hefðbundið ofnakerfi er í íbúðum auk gólfhita á baðherbergjum. Garður: Sólríkur og skjólgóður inngarður með gróðri, leiktækjum og góðri aðstöðu fyrir íbúa. Staðsetningin við Digranes er einstaklega hentug fyrir fjölskyldur og stutt er í fjölbreytta þjónustu.
Svansvottun: Mjög er vandað til framkvæmda og miðast byggingarefni og framkvæmd verkefnisins við kröfur Svansins. Sjá nánar um svansvottun hér: Svansvottun
Afhending: Eignin er tilbúin til afhendingar við kaupsamning.
Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það verður innheimt.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Skólatröð 2
200 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð92,1 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
94.900.000 kr.1.030 þ./m²
Byggingarár2025InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2522874Fasteignamat79.200.000 kr.Brunabótamat69.790.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 12 myndir
Upp ↑










