fasteignasölur.is
Gerðarbrunnur 2
1 af 42

Um eignina

Guðmundur Þór Júlíusson & Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Fallega 4ra herbergja íbúð í fjölbýlishúsi við Gerðarbrunn 2, 113 Reykjavík. Eignin er samtals 121,9 fm, vel skipulögð, á fyrstu hæð og telur þrjú svefnherbergi, stofu/borðstofu,  eldhús með eyju opnu rými, baðherbergi, þvottaherbergi, geymslu og sameiginlega hjóla- og vagnageymslu. Rúmgóðar svalir til vesturs. Húsið er byggt árið 2020.

Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is
Bókið skoðun hjá Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið arg@remax.is eða


Nánari lýsing:
Forstofa/gangur: Snyrtileg og rúmgóð forstofa með góðum skápum. Ljósar flísar á gólfi. 
Svefnherbergi I: Rúmgott, með hvítum fataskáp. Harðparket á gólfi. 
Svefnherbergi II: Rúmgott, með hvítum fataskáp. Harðparket á gólfi. 
Svefnherbergi III: Rúmgott, með hvítum fataskápum. Harðparket á gólfi. 
Baðherbergi: Með glugga, Falleg hvít baðinnrétting, upphengt wc, walk in sturta og handklæðaofn. Fallegar gráar flísar í hólf og gólf. 
Þvottaherbergi: Tengi fyrir þvottavél og þurrkara, gott skápapláss. Flísar á gólfi.
Eldhús: Vel skipulagt eldhús með eyju, hvít innrétting. Bakarofn í vinnuhæð. Harðparket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð með harðparketi á gólfi. Útgengt á rúmgóðar svalir til vesturs.
Svalir: Útgengt úr stofu á rúmgóðar svalir til vesturs.
Geymsla: 6,9 fm. geymsla á jarðhæð í sameign.
Sameign: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Sameign er öll sú snyrtilegasta.
Íbúðinni fylgir bílastæði í opnum bílakjallara.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: 
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Gerðarbrunnur 2

113 Reykjavík · Grafarholt
TegundFjölbýlishúsStærð121,9 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
96.900.000 kr.795 þ./m²
Byggingarár2020InngangurSameiginlegurBílskúrJáFasteignanúmerF2316327Fasteignamat89.750.000 kr.Brunabótamat86.910.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 42 myndir

Upp ↑